Lyf
1 2 3 4 5 6 … 29 ›
Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Geðrofslyfið quetiapín er algengasta geðrofslyfið meðal íbúa hjúkrunarheimila hér á landi. Rúmlega þriðjungur íbúanna fékk geðrofslyf í fyrra. Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að bæta eftirlit með lyfjagjöfum eldra fólks. Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að bæta eftirlit með lyfjagjöfum á hjúkrunarheimilum. Fara eigi reglulega yfir lyfjanotkun íbúa hjúkrunarheimila og bæta skráningu á því hvaða lyf þeir fá og hvers vegna. Innlent 22.10.2026 15:44
„Sífellt bjartsýnni“ á niðurstöðu Simponi-deilunnar í Bandaríkjunum Horfur Alvotech hafa batnað verulega að mati greinenda SEB, sem telja að áhætta vegna eftirlits lyfjayfirvalda sé að mestu úr sögunni og samkeppnisstaða félagsins sífellt vænlegri. Þeir spá tugprósenta prósenta innri tekjuvexti á næsta ári, langt umfram væntingar markaðarins, og eru bjarsýnir um niðurstöðu einkaleyfadeilna við Janssen í Bandaríkjunum vegna Simponi-hliðstæðunnar. Innherji 22.10.2026 14:56
Lilja Dögg ráðin forstjóri Lilja Dögg Stefánsdóttir tekur við starfi forstjóra Icepharma 1. nóvember næstkomandi. Hörður Þórhallsson, sem gegnt hefur forstjórastarfi bæði hjá Icepharma og móðurfélaginu Ósum, einbeitir sér framvegis að forstjórastarfi Ósa og þeim verkefnum sem fylgja vexti samstæðunnar. Viðskipti innlent 21.10.2026 13:31
„Mjög óheillavænleg þróun“ Lyfjafræðingur segir stóraukna notkun geðrofslyfs við svefnleysi óheillaþróun. Lyfið geti valdið alvarlegum aukaverkunum, jafnvel í litlum skömmtum eins og hækkun á blóðfitu og blóðsykri. Hann telur að fólk geti orðið háð lyfinu og hvetur lækna til að hætta að ávísa því við svefnleysi. Innlent 21.10.2026 12:54
Arctic Therapeutics klárar 2,6 milljarða fjármögnun til frekari lyfjaþróunar Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Arctic Therapeutics hefur lokið fjármögnun fyrir jafnvirði rúmlega 2,6 milljarða króna eftir að ákveðið var að stækka útboðið vegna umframeftirspurnar. Fjögur fjárfestingarfélög, þar á meðal Pekron og Kaldbakur, leiddu fjármögnunina sem verður einkum nýtt til að koma tveimur nýjum lyfjaþróunarverkefnum nær klínískum rannsóknum. Innherji 21.10.2026 09:50
Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala kallar eftir frekari rannsóknum á notkun geðrofslyfsins quetiapíns við svefnleysi. Notendum lyfsins hefur fjölgað verulega á síðustu tíu árum, einkum meðal eldra fólks. Hún segir þær fáu rannsóknir sem liggja fyrir benda til þess að lyfið geti haft jafnmiklar aukaverkanir og hefðbundin svefnlyf. Innlent 20.10.2026 20:02
Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Næstum tvöfalt fleiri fá geðrofslyf nú en fyrir tíu árum. Aukningin er sérstaklega mikil meðal eldra fólks. Geðlæknir segir lyfið í vaxandi mæli notað við svefnleysi í stað hefðbundinna svefn- og róandi lyfja. Notkun geðrofslyfsins sé þó ekki samþykkt sem svefnlyf og rannsóknir á áhrifum þess, einkum hjá öldruðum, séu af skornum skammti. Innlent 20.10.2026 06:47
Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast hjá reglum um bann við því að auglýsa lyfseðilsskyld lyf. Hún segir Lyfjastofnun með málið til skoðunar og telur mikilvægt að lögum sé fylgt. Neytendur 18.10.2026 14:53
Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Framkvæmdastjóri samtaka frumlyfjafyrirtækja á Íslandi segir verðkröfur stjórnvalda fæla erlend lyfjafyrirtæki frá því að markaðssetja lyf hér á landi. Ísland teljist örmarkaður á þessu sviði og öll Norðurlöndin myndi saman um fimm prósent af lyfjamarkaði Evrópu. Innlent 14.10.2026 23:15
Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Það er ekkert nýtt fyrir okkur almúgann að fylgjast með hagsmunapoti heilbrigðiskerfisins í fréttum fjölmiðla: Landspítalinn talar fyrir sínu; þarf meira fjármagn. Læknar verja sitt; eru mikilvægastir og vita mest. Hjúkrunarfræðingar verja sitt; geta meira og þurfa meira. Atvinnulíf 14.10.2026 07:00
Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Síðastliðin ár og áratugi hefur orðið bylting í lyfjaþróun sem leitt hefur af sér fjölda nýrra meðferðarúrræða. Líftæknilyf hafa gjörbreytt lífsgæðum fólks með langvinna sjúkdóma sem áður höfðu veruleg áhrif á daglegar athafnir. Skoðun 13.10.2026 14:03
Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen „Það þarf að meta hvert tilfelli fyrir sig og það er ekki gert í matvöruverslunum. Einstaklingur sem leitar sér þjónustu þar sem lyf eru seld þarf að geta leitað til lyfjafræðings og fengið ráðgjöf. Maður hefur áhyggjur af því, maður hefur verulegar áhyggjur af því.“ Innlent 13.10.2026 13:34
Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Drangar hefur ráðið nýja framkvæmdastjóra þriggja dótturfélaga, Samkaupa, Orkunnar og Lyfjavals. Tveir koma frá Nóa Siríus og Bauhaus en sá þriðji er hækkaður í tign. Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga hefur fram að þessu jafnframt stýrt rekstri Samkaupa og Orkunnar. Nú er orðin breyting þar á. Viðskipti innlent 13.10.2026 11:00
Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Verkjalyf og önnur lausasölulyf gætu orðið fáanleg í matvöruverslunum og á bensínstöðvum, verði frumvarp þingmanna Viðreisnar að lögum. Fyrsti flutningsmaður segir markmiðið að bæta aðgengi að lyfjunum og auka samkeppni. Hann vonast til að breytingin skili sér í lægra verði. Innlent 10.10.2026 21:01
Ljótt er ef satt er Ég hlustaði á þáttinn Kveik sem var fluttur landsmönnum fyrr í vikunni. Ég er enn að vona að raunveruleikinn sé ekki jafn slæmur og lýst var í frásögninni. Skoðun 3.10.2026 15:31
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Formaður Matthildarsamtakanna segir mikla aukningu hafa orðið í notkun vímuefnisins 4CMC bæði hér á landi og á Norðurlöndunum undanfarið. Aðaláhættan við notkun efna sem þessa sé að fólk viti ekki hvað það sé að innbyrða. Innlent 2.10.2026 13:00
Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun 81 árs kona, sem tók svefnlyf að staðaldri í nær átján ár, segist hafa orðið mjög hissa á því hversu auðvelt reyndist að draga úr notkuninni með réttum stuðningi. Samhliða því hafi orðið mikil breyting á bæði andlegri og líkamlegri líðan hennar. Yfir þriðjungur áttatíu ára og eldri notar svefn- og slævandi lyf hér á landi. Innlent 1.10.2026 13:19
Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Notkun ofnæmis, geðrofs og taugalyfja hefur stóraukist hér á landi á innan við áratug. Vísbendingar eru um að aukningin tengist því að lyfin séu líka notuð við svefnvanda. Landlæknir segir þróunina kalla á nánari skoðun. Þó skylt sé að skýra af hverju lyfjum sé ávísað sé það ekki alltaf gert. Innlent 30.9.2026 15:13
Möguleg tengsl við heilabilun Sífellt fleiri rannsóknir benda til mögulegra tengsla milli langtímanotkunar vinsælla svefnlyfja og heilabilunar. Sérfræðingar leggja þó áherslu á að frekari rannsókna sé þörf. Hins vegar er þegar vel þekkt að meðal mögulegra aukaverkana algengra svefnlyfja eru minnisleysi og minnistruflanir. Innlent 29.9.2026 14:00
Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Mikil aukning var í heildarsölu sýklalyfja fyrir dýr árið 2025. Staðan á Íslandi hvað varðar sýklalyfjaónæmi er sögð góð samanborið við stöðuna í öðrum Evrópuríkjum. Innlent 29.9.2026 10:18
„Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Drífa Sigfúsdóttir telur að áralöng svefnlyfjanotkun móður hennar hafi átt þátt í slysum sem leiddu að lokum til þess að hún endaði í hjólastól. Innlent 29.9.2026 09:03
Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Elísa Ósk Línadóttir, formaður PMOS-samtakanna á Íslandi, segir nýlega nafnbreytingu á heilkenninu mikilvæga. Hún lýsi því betur hvað fólk glími við sem greinist með heilkennð og það skipti máli. Innlent 24.9.2026 15:01
Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Yfirlæknir kvenlækningateymis á kvennadeild Landspítalans segir hægt draga verulega úr áhættu á eggjastokkakrabbameini hjá konum með því að fjarlægja eggjaleiðara. Hún segir aðgerðina oft framkvæmda á sama tíma og legnám en hún vilji tala fyrir því að aðgerðin sé framkvæmd líka þegar aðrar kviðarholsaðgerðir eru gerðar á konum. Innlent 15.9.2026 06:46
Novo hættir að vera Nordisk Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk ætlar að fríska upp á ímynd sína með nýju nafni og vörumerki og gengur héðan í frá aðeins undir nafninu Novo. Þá ætlar fyrirtækið, sem hefur orðið undir í samkeppni að undanförnu, að kynna nýja viðskiptaáætlun á næstu dögum. Viðskipti erlent 14.9.2026 10:43
Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Brotist var inn í Efstaleitisapótek í nótt en nágrannar vöknuðu við hávaða þegar jeppling var bakkað á rúðu í apótekinu með tilheyrandi látum. Engu var stolið nema lyfjum en talið er að tveir hafi verið að verki. Bíll þjófanna fannst skammt frá apótekinu en enn hefur ekki tekist að hafa uppi á þeim. Innlent 22.8.2026 18:21
Sjóðurinn Horn V eignast um þriðjungshlut eftir fjárfestingu í Lyfjaveri Meira en einu ári eftir að Horn V hóf starfsemi hefur framtakssjóðurinn klárað sína fyrstu fjárfestingu en hann hefur lagt Lyfjaveri til nýtt hlutafé og mun í framhaldinu eignast yfir þriðjungshlut í félaginu. Innherji 17.8.2026 14:17
Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Gengi lyfjafyrirtækisins Oculis hefur hækkað um tæp sjö prósent í tveimur viðskiptum fyrir alls 363 þúsund krónur í morgun. Félagið gaf út tilkynningu í gær um jákvæð viðbrögð taugasjúkdómadeildar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna við umsókn varðandi klíníska þróunaráætlun lyfsins Privosegtor við bráðum MS-köstum. Viðskipti innlent 4.8.2026 10:04
Fyrsta apótek Víkur opnað Íbúar Mýrdalshrepps hafa eignast sitt fyrsta apótek sem verður rekið undir vörumerki Apótekarans. Það mun bjóða upp á alhliða lyfja- og heilbrigðisþjónustu ásamt fjölbreyttu úrvali af vörum. Viðskipti innlent 28.7.2026 21:03
Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Ólögleg sala lyfja, sérstaklega í gegnum netið, virðist sífellt aukast og haldast í hendur við mikla og vaxandi eftirspurn. Henni er svarað af óprúttnum aðilum sem svífast einskis, en ljóst er að framleiðsla ólöglegra lyfja er vaxandi vandamál víða um heim. Skoðun 23.7.2026 13:31
Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Ólögleg peptíð sem tollgæslan gerði upptæk úr póstsendingum reyndust innihalda lítið af virkum lyfjaefnum. Mikil óhreinindi reyndust í peptíðunum. Innlent 23.7.2026 10:00