Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru enn í leit að fyrsta sigri tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni eftir 2-0 tap gegn Englandsmeisturum Manchester City í dag.
Bernando Silva kom heimamönnum í City yfir strax á 12. mínútu, og staðan var því 1-0 þegar að flautað var til hálfleiks.
Kevin De Bruyne tvöfaldaði forystu heimamanna þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka og þar við sat.
Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 72. mínútu, en Burnley situr nú í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins þrjú stig eftir átta leiki.
Manchester City er hins vegar í öðru sæti deildarinnar með 17 stig.