Innlent

Alls ekkert fár í Fnjóskadal og bóndinn saknar dýragarðsgesta

Árni Sæberg skrifar
Gubbi

Guðbergur Egill Eyjólfsson, sem rekur dýragarðinn Daladýrð, segir fullfært vera í Fnjóskadal en að enginn komi í dalinn af ótta við vatnavexti í Fnjóská.

Rekstraraðili í Fnjóskadal segir fréttaflutning af vatnavöxtum og ófærð í dalnum stórlega ýktan. Hann segir um sextíu bíla vera á bílastæðinu hjá honum undir venjulegum kringumstæðum en nú séu þeir bara þrír.

Guðbergur segir tekjutap hans af fólksskorti í Fnjóskadal hlaupa á hundruðum þúsunda króna. Venjulega séu allt að tvöhundruð manns sem sækja dýragarðinn á dag en fjöldi gesta í dag nær ekki þriggja stafa tölu. Hann nefnir einnig að um helgina fari fram stórt fótboltamót og að í eðlilegu árferði sé þessi helgi jafnstór Verslunarmannahelginni.

Ljóst er að fleiri rekstraraðilar í Fnjóskadal finna fyrir skorti á fólki og því má áætla að heildartekjutap í dalnum hlaupi á milljónum króna.

Guðbergur segir sumarið annars hafa farið vel af stað hjá Daladýrð allt þar til kuldakastið mikla reið yfir fyrir um tveimur vikum. Síðan kom mikið hvassviðri og nú leysingar í Fnjóskánni.

Nú er útlitið bjartara fyrir rekstraraðila í Fnjóskadal og nágrenni enda er mikið blíðviðri í kortunum fyrir norðan.

Vatnshæð í Fnjóská komin í eðlilegt horf

Veðurstofa Íslands staðfesti í samtali við fréttastofu að vatnshæðin í Fnjóská hafi snarlækkað frá klukkan sjö í morgun og hafi verið komin í eðlilegt horf um hádegi.

Aðspurður segir sérfræðingur Veðurstofu að áin hafi verið óvenju fljót að ná sér. Ástæðu þess telur hann vera að leysingarnar orsökuðust af hraðri snjóbráðnun sökum hás hitastigs og mikils vinds. 

Þegar vindinn lægði dró úr hraða snjóbráðnunarinnar og þar sem ekki var um neina úrkomu að ræða minnkaði vatn í áni hratt.

Veðurstofa og Almannavarnir funda í þessum rituðu orðum en starfsmaður Veðurstofu býst staðfastlega við að hættustigi varði aflétt á Norðurlandi að fundinum loknum.

Fréttin verður uppfærð. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×