Fótbolti

11 dagar í EM: Dauðariðilinn sem Ísland hefði verið í

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fernando Santos, Joachim Löw og Didier Deschamps við Henri Delaunay bikarinn sem keppt er um á Evrópumótinu.
Fernando Santos, Joachim Löw og Didier Deschamps við Henri Delaunay bikarinn sem keppt er um á Evrópumótinu. getty/Dean Mouhtaropoulos

Evrópumótið í fótbolta karla er handan við hornið og í dag rýnum við í F-riðil mótsins, dauðariðilinn sem Íslendingar hefðu verið í hefðu þeir komist á EM.

Ekki leikur neinn vafi á því að F-riðilinn er sá sterkasti af riðlunum sex á EM enda eru þar sigurvegarar síðustu þriggja stórmóta (HM 2014 og 2018 og EM 2016). Ungverjaland, sem komst á EM á kostnað Íslands ósælla minninga, verður í dauðariðlinum með þremur af stærstu fótboltaþjóðum heims.

Portúgal á titil að verja en liðin í F-riðli hafa unnið samtals sex af fimmtán Evrópumeistaratitlum sem keppt hefur verið um.

Heimsmeistarar Frakklands eru óárennilegir og portúgalska liðið í dag er sterkara en það sem varð Evrópumeistari fyrir fimm árum. Þjóðverjar eru í krísu en eru samt með gríðarlega sterkt lið og vilja eflaust kveðja Joachim Löw með stæl.

Þótt Ungverjar verði á heimavelli í fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlakeppninni er erfitt að sjá þá ná í stig og forðast botnsætið í riðlinum. Baráttan um hin þrjú sætin er hins vegar galopin. 

LEIKIRNIR Í F-RIÐLI:

  • 15. júní: Ungverjaland - Portúgal, Búdapest
  • 15. júní: Frakkland - Þýskaland, München
  • 19. júní: Ungverjaland - Frakkland, Búdapest
  • 19. júní: Portúgal - Þýskaland, München
  • 23. júní: Portúgal - Frakkland, Búdapest
  • 23. júní: Þýskaland - Ungverjaland, München
Dominik Szoboszlai fagnar markinu sem kom Ungverjum á EM á kostnað Íslendinga.GETTY/LASZLO SZIRTESI

Ungverjaland

  • Þjálfari: Marco Rossi
  • Stjörnur liðsins: Dominik Szoboszlai (Leipzig), Willi Orban (Leipzig), Péter Gulásci (Leipzig)
  • Árangur á EM: Þrisvar sinnum með (1964, 1972, 2016). Besti árangur 3. sæti 1964

Eftir 44 ára fjarveru frá Evrópumótinu komst Ungverjaland á EM í Frakklandi 2016. Liðið var í riðli með Íslandi, Portúgal og Austurríki og kom mjög á óvart með því að vinna hann. Ungverjaland tapaði svo fyrir Belgíu, 4-0, í sextán liða úrslitunum.

Ungverjar komust ekki á HM 2018 en þurftu endilega að komast á EM 2020. Tölum ekki meira um leiðina sem þeir fóru þangað.

Ef allt er eðlilegt verður ungverska liðið auðveld bráð fyrir hákarlana í F-riðli. En Ungverjar eru sýnd veiði en ekki gefin og hafa ekki tapað í síðustu níu leikjum sínum.

Ítalinn Marco Rossi hefur gert eftirtektarverða hluti með ungverska liðið sem hefur engu að tapa á EM. Ungverjar treysta mikið á Leipzig-tríóið, markvörðinn Péter Gulácsi, varnarmanninn Willi Orban og miðjumanninn Dominik Szoboszlai.

Portúgalir fagna Evrópumeistaratitlinum 2016.getty/Matthias Hangst

Portúgal

  • Þjálfari: Fernando Santos
  • Stjörnur liðsins: Cristiano Ronaldo (Juventus), Bruno Fernandes (Man. Utd.), Bernardo Silva (Man. City)
  • Árangur á EM: Sjö sinnum með (1984, 1996, 2000, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur Evrópumeistari 2016

Þrátt fyrir að hafa aðeins unnið einn leik í venjulegum leiktíma stóðu Portúgalir uppi sem sigurvegarar á EM 2016. Portúgal olli vonbrigðum á HM 2018 en vann Þjóðadeildina 2019. Portúgalska liðið tryggði sér sæti á EM 2020 með því að lenda í 2. sæti B-riðils undankeppninnar.

Portúgalska liðið er ógnarsterkt og á pappírnum talsvert sterkara en það sem varð Evrópumeistari 2016. Síðan þá hafa frábærir leikmenn á borð við Rúben Dias, Bruno Fernandes, Bernardo Silva, Diogo Jota og André Silva bæst við hópinn.

Í broddi fylkingar hjá portúgalska liðinu er svo Cristiano Ronaldo sem skoraði sitt hundraðasta landsliðsmark síðasta haust. Ronaldo, sem er 36 ára, er á leið á sitt fimmta og kannski síðasta Evrópumót.

Karim Benzema og Didier Deschamps slíðruðu sverðin og sá fyrrnefndi sneri aftur í franska landsliðið eftir fimm ára útlegð.getty/John Berry

Frakkland

  • Þjálfari: Didier Deschamps
  • Stjörnur liðsins: Kylian Mbappé (PSG), Antoine Griezmann (Barcelona), Paul Pogba (Man. Utd.)
  • Árangur á EM: Níu sinnum með (1960, 1984, 1992, 1996, 2000, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur Evrópumeistari 1984 og 2000

Frakkar stefna á að endurtaka leikinn frá síðustu aldamótum þegar þeir fylgdu heimsmeistaratitlinum 1998 eftir með því að verða Evrópumeistarar 2000. Og það kæmi lítið á óvart ef þeim tækist ætlunarverk sitt.

Franska liðið er svipað og á HM 2018 nema nú hefur Karim Benzema bæst við eftir fimm ára útlegð frá landsliðinu. Ekki veikist franska liðið við það.

Frakkar voru með Íslendingum í riðli í undankeppni EM og unnu hann. Frakkland vann átta af tíu leikjum sínum, gerðu eitt jafntefli og töpuðu einum leik. Frakkar unnu svo sinn riðil í Þjóðadeildinni og komust í úrslitakeppni hennar.

Franska liðið er svakalega sterkt og afar líklegt til afreka. Frakkar lentu í 2. sæti á EM á heimavelli 2016 en það kæmi ekkert á óvart ef þeir færu alla leið að þessu sinni.

Þjóðverjar hafa ýmislegt að sanna á EM.getty/Boris Streubel

Þýskaland

  • Þjálfari: Joachim Löw
  • Stjörnur liðsins: Toni Kroos (Real Madrid), Manuel Neuer (Bayern München), Thomas Müller (Bayern München)
  • Árangur á EM: Tólf sinnum með (1972, 1976, 1980, 1984, 1988, 1992, 1996, 2000, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur Evrópumeistari 1972, 1980, 1996

Síðustu ár hafa verið erfið hjá þýska landsliðinu. Það féll úr leik í riðlakeppninni á HM 2018 og gekk illa í Þjóðadeildinni 2018 og 2020. Flestir héldu að botninum væri náð þegar Þýskaland tapaði 6-0 fyrir Spáni í Þjóðadeildinni en svo kom afar óvænt 1-2 tap fyrir Norður-Makedóníu í undankeppni HM 2022. Þjóðverjar unnu þó sinn riðil í undankeppni EM sannfærandi.

Eftir fimmtán ára starf kveður Joachim Löw þýska landsliðið í sumar. Hann hefur kyngt stoltinu og hóað aftur í reynsluboltana Mats Hummels og Thomas Müller til að hjálpa þýska liðinu á EM.

Löw vill eflaust kveðja með stæl og skreyta ferilskrána með Evrópumeistaratitli. Þótt það sé varhugavert að vanmeta Þjóðverja á stórmótum eru þeir fyrirfram ekki eitt af líklegustu liðunum til afreka á EM.

Hvað gerist næst?

Tvö efstu liðin í riðlinum eru örugg um sæti í sextán liða úrslitum. Fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti, í riðlunum sex, komast einnig í sextán liða úrslitin.

Sigurliðið í F-riðli mætir liðinu sem endar í 3. sæti A-, B- eða C-riðils.

Liðið í 2. sæti F-riðli mætir sigurliðinu í D-riðli (England, Króatía, Skotland, Tékkland).

Liðið úr 3. sæti F-riðils gæti mögulega mætt sigurliðinu úr B- eða C-riðli.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×