Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 22:00 Kylian Mbappé fagnar hér öðru marka sinn á Nývangi í kvöld. AP/Joan Monfor Franski framherjinn Kylian Mbappé var maður kvöldsins þegar hann gerði út um ElEl-Clasico-leikinn móti erkifjendunum í Barcelona. Mbappé skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri á Nývangi, þar á meðal sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok. Í fyrra markinu var hreinsað í Mbappé og þaðan fór hann í markið en sigurmarkið kom eftir flotta sókn þar sem Jude Bellingham gerði vel og Eduardo Camavinga lagði boltann síðan út á Kylian Mbappe sem skoraði óvarið markið. Raphinha jafnaði metin á 61. mínútu eftir stoðsendingu Pedri og það stefndi í stórmeistarajafntefli þegar franski framherjinn tók til sinna ráða. Mbappé hefur nú skorað ellefu deildarmörk eða tveimur færri en Raphinha sem er markahæstur í deildinni með þrettán. Með þessum lífsnauðsynlega sigri fyrir lærisveina Jose Mourinho í Real Madrid minnkaði liðið forskot Börsunga á toppnum. Barcelona er nú tveimur stigum á undan Atlético Madrid og þremur stigum á undan Real Madrid. Barcelona tapaði fyrsta leik tímabilsins í Meistaradeildinni í viku og hefur nú tapað tveimur leikjum í röð. Mikilvægi sigursins sést ekki síst á þeirri staðreynd að Barcelona átti möguleika á því að ná níu stiga forskoti á Real með sigri. Spænski boltinn Fótbolti Real Madrid CF FC Barcelona