Fótbolti

17 dagar í EM: Fótboltinn kemur heim, dreggjar króatísku gullkynslóðarinnar og Skotar loksins með

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Englendingar eru á heimavelli á EM eins og þeir voru fyrir 25 árum.
Englendingar eru á heimavelli á EM eins og þeir voru fyrir 25 árum. getty/Christopher Lee

Það styttist óðfluga í EM karla í fótbolta. Vísir rýnir í dag í D-riðil þar sem Englendingar eru á heimavelli ásamt Skotum sem snúa aftur á stórmót eftir 23 ára fjarveru.

England lenti í 4. sæti á HM 2018 og síðan þá hafa ungir og spennandi leikmenn bæst við enska hópinn. Væntingarnar til Englendinga eru því talsverðar eins og venjulega.

Eftir rúmlega tveggja áratuga bið komust Skotar aftur á stórmót með dramatískum hætti. Líkt og á EM 1996, síðasta Evrópumótinu sem þeir komust á, eru þeir með Englendingum í riðli.

Króatar eru einnig í D-riðli og Englendingar vilja eflaust ná fram hefndnum gegn þeim eftir tapið sára í undanúrslitum HM 2018. Fjórða og síðasta liðið D-riðli er svo Tékkland sem þykir ekki líklegt til afreka.

LEIKIRNIR Í D-RIÐLI:

13. júní: England-Króatía, Wembley

14. júní: Skotland-Tékkland, Glasgow

18. júní: Króatía-Tékkland, Glasgow

18. júní: England-Skotland, Wembley

22. júní: Króatía-Skotland, Glasgow

22. júní: Tékkland-England, Wembley

Raheem Sterling í baráttu við Hjört Hermannsson í leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni síðasta haust.vísir/hulda margrét

England

Þjálfari: Gareth Southgate

Stjörnur liðsins: Harry Kane (Tottenham), Raheem Sterling (Man. City), Mason Mount (Chelsea)

Árangur á EM: Níu sinnum með (1968, 1980, 1988, 1992, 1996, 2000, 2004, 2012, 2016). Besti árangur 3. sæti 1968

Englendingar tefla fram sterkara liði en því sem komst í undanúrslit á HM 2018. Kjarninn er enn sá sami en síðan þá hafa ungir og spennandi leikmenn á borð við Mason Mount, Phil Foden Jadon Sancho, Mason Greenwood og Jude Bellingham bæst við.

Eins og venjulega rúllaði England yfir sinn riðil í undankeppninni, vann sjö leiki af átta og var með markatöluna 37-6.

Gareth Southgate hefur svo sannarlega hráefnin en spurningin er hvernig honum tekst að blanda þeim saman. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að vera full varfærinn í sinni nálgun en ef hann nær að feta hinn gullna meðalveg gæti enska liðið farið langt.

Englendingar verða á heimavelli í riðlakeppninni og í 16-liða úrslitunum ef þeir vinna riðilinn. Þá fara undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikirnir fram á Wembley. Þar dreymir enska um að vera og fagna því að fótboltinn komi heim eins og Baddiel and Skinner sungu svo eftirminnilega um.

Luka Modric sló nýverið leikjametið hjá króatíska landsliðinu. Hann hefur leikið 136 landsleiki og skorað sautján mörk.getty/Igor Kralj

Króatía

Þjálfari: Zlatko Dalic

Stjörnur liðsins: Luka Modric (Real Madrid), Ivan Rakitic (Inter), Marcelo Brozovic (Inter)

Árangur á EM: Fimm sinnum með (1996, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur átta-liða úrslit (1996, 2008)

Króatar lentu í 2. sæti á síðasta stórmóti, HM 2018, þegar gullkynslóð þeirra toppaði. Síðan þá hafa nokkrir leikmenn lagt landsliðsskóna á hilluna en kanónur eins og Luka Modric, Dejan Lovren, Ivan Rakitic og Marcelo Brozovic eru enn til staðar.

Króatía vann sinn riðil í undankeppni EM og fékk sautján stig af 24 mögulegum. Króatíska liðinu gekk hins vegar illa í Þjóðadeildinni og var heppið að falla ekki niður í B-deild.

EM í ár verður sennilega hinsti dans króatísku gullkynslóðarinnar og spurningin er hversu mikið Zlatko Dalic getur kreist út úr Modric, Rakitic og félögum. Króatía ætti að fara upp úr riðlinum og eftir það er allt mögulegt eins og króatíska liðið sýndi á HM 2018 þar sem það komst í úrslit eftir tvær vítaspyrnukeppnir og svo sigur í framlenginu á móti Englandi í undanúrslitunum. 

Skotar fagna EM-sætinu eftir sigur á Serbum í vítaspyrnukeppni í umspili.getty/Nikola Krstic

Skotland

Þjálfari: Steve Clarke

Stjörnur liðsins: Andy Robertson (Liverpool), Kieran Tierney (Arsenal), Scott McTominay (Man. Utd.)

Árangur á EM: Tvisvar sinnum með (1992, 1996). Besti árangur riðlakeppni (1992, 1996)

Loksins, loksins komust Skotar á stórmót eftir 23 ára bið. Leiðin á áfangastað var langt frá því að vera greið en Skotar unnu Ísraela og Serba í vítaspyrnukeppni í EM-umspilinu.

Skoska liðið byggir á sterkum kjarna leikmanna úr ensku úrvalsdeildinni eins og Andy Robertson, Kieran Tierney, Scott McTominay og John McGinn. Mikið mun mæða á þeim síðastnefnda en hann er langmarkahæstur í skoska hópnum, þó ekki með nema tíu landsliðsmörk.

Skotar verða á heimavelli í tveimur af þremur leikjum sínum í D-riðli og mæta svo Englendingum á Wembley eins og þeir gerðu á EM 1996. Skotar verða væntanlega í baráttu við Tékka um 3. sæti riðilsins og vonast til að það fleyti þeim í útsláttarkeppnina.

Tékkar eru með á sjöunda Evrópumótinu í röð.getty/Thomas Eisenhuth

Tékkland

Þjálfari: Jaroslav Silhavý

Stjörnur liðsins: Tomás Soucek (West Ham), Patrik Schick (Bayer Leverkusen), Vladimír Coufal (West Ham)

Árangur á EM: Níu sinnum með (1960, 1976, 1980, 1996, 2000, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur Evrópumeistari 1976

Tékkar eru fastagestir á EM en þeir eru nú með á sjöunda Evrópumótinu í röð. Þeir ollu miklum vonbrigðum á EM 2016 og komust ekki upp úr riðlakeppninni.

Tékkland tryggði sér EM-sætið með því að enda í 2. sæti A-riðils á eftir Englandi. Tékkar unnu fimm af átta leikjum sínum og töpuðu þremur, þar af báðum leikjunum fyrir Englendingum sem þeir mæta nú aftur á EM. Tékkneska liðinu gekk vel í síðustu Þjóðadeild og vann sér sæti í A-deildinni. Það mætir því með sjálfstraust til leiks á EM.

Tékkneska liðið er ekki stjörnum prýtt og reynslan í því frekar lítil en liðsheildin er sterk. Mikið mæðir á West Ham-mönnunum Vladimír Coufal og Tomás Soucek og í framlínunni treysta Tékkar á helst á Patrik Schick, leikmann Bayer Leverkusen.

Hvað tekur við?

Tvö efstu liðin í riðlinum eru örugg um sæti í 16-liða úrslitum. Fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti, í riðlunum sex, komast einnig í 16-liða úrslitin.

Sigurliðið í D-riðli mætir liðinu sem endar í 2. sæti F-riðils (Ungverjaland, Portúgal, Frakkland, Þýskaland).

Liðið í 2. sæti D-riðils mætir liðinu sem endar í 2. sæti E-riðils (Spánn, Svíþjóð, Pólland, Slóvakía).

Liðið úr 3. sæti D-riðils gæti mögulega mætt sigurliðinu úr B-, C- eða E-riðli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×