Fótbolti

14 dagar í EM: Spánn hyggur á upprisu, Svíar spjara sig án Zlatans og Lewandowski fékk nýjan þjálfara í janúar

Sindri Sverrisson skrifar
Gerard Moreno hefur verið sjóheitur í vetur í markaskorun.
Gerard Moreno hefur verið sjóheitur í vetur í markaskorun. EPA/JUANJO MARTIN

Það má búast við spennandi baráttu um efstu tvö sætin í E-riðli á EM þar sem Spánverjar þykja þó sigurstranglegastir, þrátt fyrir vonbrigði á síðustu stórmótum.

Svíar tefla fram spennandi liði sem reyndar þarf að spjara sig án Zlatans Ibrahimovic eftir að hann meiddist. Hann var þó ekki heldur með þegar liðið komst í 8-liða úrslit á síðasta HM.

Robert Lewandowski skoraði 48 mörk í 40 leikjum fyrir Bayern München í vetur en þessi besti leikmaður ársins 2020, hjá FIFA, þarf að skora fleiri mörk en hann er vanur að gera fyrir Pólland á stórmótum.

Slóvakía er lítilmagninn í riðlinum og spurning hvað Marek Hamsik og félögum tekst að töfra fram.

LEIKIRNIR Í E-RIÐLI:

  • 14. júní: Pólland - Slóvakía, Pétursborg
  • 14. júní: Spánn - Svíþjóð, Sevilla
  • 18. júní: Svíþjóð - Slóvakía, Pétursborg
  • 19. júní: Spánn - Pólland, Sevilla
  • 23. júní: Slóvakía - Spánn, Sevilla
  • 23. júní: Svíþjóð - Pólland, Pétursborg

Spánverjar eru sigurstranglegastir í E-riðli.Getty/David S. Bustamante

Spánn

Þjálfari: Luis Enrique.

Stjörnur liðsins: Sergio Busquets (Barcelona), Thiago (Liverpool), Álvaro Morata (Juventus).

Árangur á EM: Evrópumeistari þrisvar (1964, 2008 og 2012). Með 10 sinnum (1964, 1980, 1984, 1988, 1996, 2000, 2004, 2008, 2012, 2016).

Eftir mikil vonbrigði á síðustu þremur stórmótum ætla Spánverjar sér að taka skref í átt að gullöldinni fyrir áratug síðan þegar þeir urðu Evrópumeistarar tvö mót í röð, fyrstir þjóða, og heimsmeistarar í millitíðinni.

Spánn mun vafalaust bjóða upp á skemmtilegan fótbolta undir stjórn Luis Enrique, sem sneri aftur í þjálfun eftir hlé þegar hann tók við Spáni eftir HM 2018. Undankeppnin var lítið mál, Spánn tapaði ekki leik og endaði fimm stigum fyrir ofan verðandi mótherja sína á EM, Svía.

Enrique þarf að spjara sig án Sergio Ramos en hefur fengið nýjan landsliðsmann í Aymeric Laporte, miðverði Manchester City, sem gafst upp á að komast í franska landsliðið. Hann gæti reynst mikilvægt púsl í vörnina, Spánn er að vanda með hágæða miðjumenn og fremst má búast við að Álvaro Morata og einn allra heitasti framherji Evrópu í vetur, Gerard Moreno, láti til sín taka.

Janne Andersson þarf að treysta á að Victor Lindelöf bindi vörn Svía vel saman.EPA/GEORGI LICOVSKI

Svíþjóð

Þjálfari: Janne Andersson.

Stjörnur liðsins: Victor Lindelöf (Man. Utd), Emil Forsberg (RB Leipzig), Alexander Isak (Real Sociedad)

Árangur á EM: Með sex sinnum (1992, 2000, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur 3. sæti árið 1992.

Svíar ætluðu að bjóða Zlatan Ibrahimovic velkominn aftur á stórmót en þessi mikla þjóðhetja þeirra varð að hætta við mótið vegna meiðsla.

Svíar hafa þó öflugt lið og nokkra afar spennandi, unga leikmenn eins og Dejan Kulusevski úr Juventus og Alexander Isak, markaskorara Real Sociedad.

Eina tap Svía í undankeppninni kom gegn Spáni á útivelli, liðið gerði jafntefli í báðum leikjunum við lærisveina Lars Lagerbäck í Noregi en enduðu fjórum stigum ofar. Þeir unnu tvo fyrstu leiki sína í undankeppni HM í mars, gegn Georgíu og Kósovó.

Janne Andersson tók við Svíþjóð eftir vonbrigði á síðasta EM og fór með liðið í 8-liða úrslit á HM 2018. Liðið ætti ekki að hafa versnað síðan þá.

Robert Lewandowski þarf að láta til sín taka ætli Pólverjar að fara langt á EM.EPA/Leszek Szymanski

Pólland

Þjálfari: Paulo Sousa.

Stjörnur liðsins: Robert Lewandowski (Bayern), Wojciech Szczesny (Juventus), Mateusz Klich (Leeds).

Árangur á EM: Með þrisvar sinnum (2008, 2012 og 2016). Besti árangur 8-liða úrslit árið 2016 (tap í vítaspyrnukeppni gegn Portúgal).

Pólverjar hafa aldrei komist lengra en í átta liða úrslit á EM en eiga tvenn bronsverðlaun frá HM. Þeir eiga sterka máttarstólpa í marki, vörn, miðju og sókn, og mestar vonir eru auðvitað bundnar við Robert Lewandowski sem þarf þó að hafa meira fyrir mörkunum en í sínu daglega starfi í Þýskalandi.

Pólverjar unnu sinn undanriðil fyrir EM með sannfærandi hætti þar sem þeir unnu átta leiki og eina tapið var gegn Slóveníu á útivelli. Það dugði þó ekki til að Jerzy Brzeczek héldi starfi sínu sem landsliðsþjálfari og Portúgalinn Paulo Sousa var ráðinn í janúar. 

Undir hans stjórn fór Pólland ekki sérstaklega vel af stað í undankeppni HM í síðasta mánuði, en þó ekki hræðilega heldur; gerði 3-3 jafntefli við Ungverjaland, vann Andorra 3-0 og tapaði gegn Englandi á Wembley, 2-1.

Ítalíumeistarinn Milan Skriniar fagnar eftir að sigurinn á Norður-Írum var í höfn og sæti á EM tryggt.EPA/JOHN MCVITTY

Slóvakía

Þjálfari: Stefan Tarkovic.

Stjörnur liðsins: Marek Hamsik (IFK Gautaborg), Milan Skriniar (Inter), Martin Dubravka (Newcastle).

Árangur á EM: Einu sinni með, á EM 2016, þar sem liðið komst í 16-liða úrslit.

Slóvakar komust með miklum naumindum inn á EM og virðast vissulega minni máttar í riðlinum. Þeir náðu á EM í gegnum Þjóðadeildarumspil, úr B-deild, með því að vinna Íra í vítaspyrnukeppni og svo Norður-Íra í framlengdum leik.

Liðið hóf svo undankeppni HM í mars á að gera jafntefli við Kýpur og Möltu en náði hins vegar að vinna Rússland, 2-1.

Fyrirliðinn Marek Hamsik, sem einhvern veginn endaði í sænsku úrvalsdeildinni í mars en hefur skorað 100 mörk fyrir Napoli á ferlinum, þarf að leiða Slóvaka áfram.

Hinn 48 ára gamli Stefan Tarkovic stýrir liðinu utan vallar en hann hafði verið aðstoðarþjálfari, meðal annars á EM 2016, áður en hann tók óvænt við sem aðalþjálfari á milli sigranna gegn Írum og Norður-Írum í fyrrahaust.

Hvað tekur við?

Í 16-liða úrslitunum mætir sigurliðið í E-riðli liðinu úr 3. sæti í A, B, C eða D-riðli. Liðið í 2. sæti E-riðils mætir liðinu úr 2. sæti D-riðils (England, Króatía, Skotland, Tékkland). Liðið í 3. sæti gæti mögulega komist áfram og mætt þá sigurliðinu úr B- eða C-riðli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×