Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 19:21 Orri Steinn Óskarsson raðar inn mörkum þessa dagana. EPA/JAVIER ETXEZARRETA Íslenski knattspyrnumaðurinn Orri Steinn Óskarsson var áfram á skotskónum í kvöld þegar Real Sociedad vann 2-1 heimasigur á Levante í spænsku deildinni. Orri var í byrjunarliðinu og kom Real Sociedad í 1-0 strax á sjöttu mínútu leiksins. Beñat Turrientes kom Sociedad aftur yfir í 2-1 á 27. mínútu eftir að Nacho Pérez jafnaði metin á 23. mínútu. Orri spilaði fyrstu 85 mínútur leiksins. Hann reyndi sex skot en hitti markið bara einu sinni. Orri klikkaði á tveimur góðum færum í leiknum og hefði því getað bætt við mörkum í kvöld. Hann kom 25 sinnum við boltann, þar af sex sinnum í vítateig mótherjanna. Orri Steinn skoraði þarna í þriðja leiknum í röð en hann skoraði einnig í deildarleik á móti Málaga um síðustu helgi og í Evrópuleik á móti Lilleström í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið. Orri hefur skorað fjögur mörk á leiktíðinni, þar af þrjú þeirra í átta deildarleikjum. Orri kom sjóðandi heitur úr landsliðsglugganum og hefur haldið áfram að raða inn mörkum með félagsliði sínu. Spænski boltinn Fótbolti Íslendingar erlendis