Boðar endurfundi lýðveldisbarnanna 11. júní 2011 10:00 Boðað hefur verið til endurfunda lýðveldisbarnanna, þeirra sem upplifðu lýðveldishátíðina á Þingvölllum árið 1944. Skipulögð dagskrá verður á lýðveldisdaginn 17. júní næstkomandi. Mynd/Pjetur
Fjöldinn allur af börnum fylgdi foreldum sínum á Þingvöll við stofnun íslenska lýðveldisins 17. júní árið 1944. Nú hefur Þór Jakobsson veðurfræðingur boðað til endurfunda hinna svokölluðu lýðveldisbarna í tilefni tímamótanna á lýðveldisdaginn næstkomandi föstudag. „Það er nokkuð síðan ég fékk þessa hugmynd," segir Þór. „Fyrir lýðveldishátíðina 1994 hafði ég samband við aðstandendur hátíðarinnar og stakk upp á því að við sem vorum viðstödd 1944 myndum koma saman. Það varð svo úr að við hittumst stuttlega, en síðan varð ekki meira úr því." Þór segir hugmyndina hafa leitað á sig á ný og því hafi hann ákveðið að láta af verða. Þór var sjálfur sjö ára gamall þegar hann fór til Þingvalla ásamt foreldrum sínum og fjórum systkinum. „Þetta var mögnuð upplifun þó að ég hafi auðvitað verið barn að aldri. Það er mér minnisstætt hversu mikið rigndi, en það var ekkert aðalatriði. Ég minnist helst mannhafsins sem var þar og mínútuþagnarinnar sem lagði yfir Þingvelli. Þetta er ein af þessum stundum sem fylgir manni alla tíð." Þór segir að dagskráin hafi ekki beint höfðað til barna og þau yngstu varla hlustað með athygli á ræðurnar, en þetta hafi þó verið samverustund fyrir fjölskyldur og margir slegið upp tjöldum og gist á Þingvöllum.Þór JakobssonDagskráin í ár verður ekki löng og er skipulögð í samráði við Ólaf Örn Haraldsson þjóðgarðsvörð. Hópurinn mun safnast saman klukkan 12 á hádegi við fræðslumiðstöðina á Hakinu fyrir ofan Almannagjá. Þaðan verður gengið niður gjána og klukkan 13 verður stutt ávarp flutt við Lögberg. Eftir það verður hópsöngur og athöfninni skal ljúka fyrir klukkan 13.45. „Ég lít á þetta sem tækifæri til að hittast og rifja upp þennan sérstaka dag fyrir 67 árum," segir Þór. Hann bætir því við að þrátt fyrir að athöfnin sé hugsuð fyrir þá sem voru viðstaddir á sínum tíma, séu fjölmargir sem hafi ekki getað verið á Þingvöllum, en voru sem límdir við útvarpstækin heima. „Þau skynjuðu ekki síður en við mikilvægi þessarar stundar og gaman er ef þau vilja líka koma." Þór segir að lokum að hann vonist til þess að sem flestir mæti, en stefnt er að því að halda þessa endurfundi á þriggja ára fresti framvegis. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira