Dómurinn gæti haft fordæmisgildi 13. október 2005 14:41
Dómur í máli danskrar handboltakonu gegn tímaritinu Se og hör kann að hafa fordæmisgildi hér landi. Ritstjórar og blaðamenn danska tímaritsins töpuðu málinu og voru dæmdir til greiðslu sektar fyrir að hafa birt grein um einkalíf konunnar, gegn vilja hennar. Danskur dómstóll dæmdi ritstjóra og blaðamenn Se og Hör til að greiða sem samsvarar um átta hundruð þúsund íslenskum krónum. Fyrir tveimur árum fjallaði blaðið um ástamál Önju Andersens, sem er þekktasta handboltakona Danmerkur, en hún var þá þjálfari kvennaliðs Slagelse og átti í ástarsambandi við aðra stúlku í liðinu. Anja stefndi blaðinu og vann sigur í málinu en samkvæmt dóminum hafði umfjöllun blaðsins ekkert með íþróttaiðkun kvennana að gera, heldur einkalíf þeirra, og mátti blaðinu vera ljóst að það var gegn vilja beggja. Talið er að dómurinn ytra kunni að hafa fordæmisgildi hér á landi en íslenska Séð og heyrt hefur löngum fjallað um einkalíf fólks með svipuðum hætti og danska blaðið. Ragnar Aðalsteinsson lögmaður, sem fjallað hefur um ýmis mál tengd tjáningarfrelsi einstaklinga, segir augljóst að danski dómurinn taki mið af nýlegum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Karólínu Mónakóprinsessu gegn þýsku tímariti. Þar varð niðurstaðan sú að þegar um opinberar persónur er að ræða, þá megi segja fréttir í tengslum við opinber störf þeirra, en öðru máli gegni þegar komi að birtingu mynda sem varði einkalíf þeirra því fyrir slíkum myndum verði að fá heimild og samþykki viðkomandi. Ragnar telur að með dómi mannréttindadómstóls Evrópu hafi margt skýrst sem áður hafi verið óljóst og danski dómurinn taki augljóslega mið af því.
Fréttir Innlent Mest lesið Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Innlent Hitamet slegið á Spáni um helgina Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Erlent Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Innlent Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Innlent Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Innlent Fleiri fréttir Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Sjá meira