Innlent

Höfuðkúpan notuð sem öskubakki

Höfuðkúpan sem fannst á leiksvæði við Meðalfellsvatn í gærdag er rakin til hjólhýsis sem þar stóð síðasta sumar. Niðurstöður bráðabirgðarannsóknar sína að höfuðkúpan er líklega úr konu eða barni sem lést fyrir tíu til þrjátíu árum.

Það er ekki á hverjum degi sem mannabein finnast á víðavangi og því var heimamönnum við Meðalfellsvatn brugðið þegar maður gekk þar fram á höfuðkúpu.

Maðurinn var ásamt tveimur börnum að leik hér þegar þau gengu fram á hauskúpuna þar sem hún lá hér innan um annað drasl á jörðinni.

Maðurinn kallaði til lögreglu sem sendi tæknideild sína á staðinn til að kanna hvort fleiri bein væri þar að finna. Svo reyndist ekki vera og sýndi frumrannsókn á höfuðkúpunni að hún er líklega úr konu eða barni sem lést fyrir 10 til 30 árum.

Snemma í gærkvöldi gaf sig fram kona til lögreglu sem sagðist kannast við að eiga hauskúpuna

Hauskúpan var úr hjólhýsi sem stóð hér á þessum stað allt þar til í vetur þegar það fauk um koll í vondu veðri og sprakk.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði hún þar verið notuð sem öskubakki í nokkurn tíma. Lögreglan rannsakar nú hvort skýringar konunnar eigi við rök að styðjast. Konan ku samkvæmt heimildum fréttastofu ekki vita hver uppruni höfuðkúpunnar er en lögreglan reynir nú að hafa uppi á manni sem talið er að geti veitt frekari upplýsingar um málið. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns þá er ekki ljóst á þessari stundu hvort málið teljist til sakamála enda uppruni höfuðkúpunnar óljós og aldursgreining hennar ónákvæm.

Á heimsíðu Kjósahrepps er haft eftir eiganda höfuðkúpunnar að honum hafi sett hroll við tilhugsunina um að í húsakynnum sínum hafi verið raunverulegt mannabein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×