Ísaldarþríeykið snýr aftur í fjórðu myndinni 28. apríl 2011 23:00 Manni, Lúlli og Dýri snúa aftur í fjórðu myndinni, þar sem þeir fylgjast með myndun meginlandsins.
Þeir Manni, Lúlli og Dýri eru sennilega eitt ólíklegasta þríeyki sem til er: loðfíll, letidýr og sverðtígur. Þeir kynntust fyrst þegar þeir björguðu litlu barni frá blóðþyrstri hjörð Dýra og hafa síðan þá haldið hópinn. Myndirnar, sem eru orðnar þrjár talsins, hafa notið mikilla vinsælda og skilað gróða upp á 2 milljarða dala, eða 225 milljarða íslenskra króna. Það kemur því ekkert óskaplega á óvart að ráðast eigi í gerð fjórðu myndarinnar, en stefnt er að frumsýningu hennar á næsta ári. Þeir Ray Romano, John Leguizamo og Denis Leary verða sem fyrr í sínum hlutverkum og Queen Latifah snýr að sjálfsögðu aftur í hlutverk Elínar.Jennifer Lopez bætist í hópinn sem þokkafull sverðtígursynja.Og nú hefur verið tilkynnt að Jennifer Lopez muni bætast í þennan fríða og föngulega hóp þegar hersingin verður vitni að myndun meginlandsins (en þremenningarnir hafa áður upplifað ísöld, bráðnun jökulsins og risaeðluskeiðið). Lopez mun ljá Shiru, þokkafullri sverðtígursynju, rödd sína sem fangar hið annars kalda hjarta Dýra. Þetta er ekki hið eina sem áhorfendur mega eiga von á frá Ísaldarhópnum, því búið er að skipuleggja sérstakan jólaþátt fyrir sjónvarp og væntanlegur er tölvuleikur fyrir síma.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira