Innlent

Mikið um hálkuslys

Mikil hálka var í morgun og virtist koma mörgum í opna skjöldu. Þannig urðu sjö umferðaróhöpp í nótt og tvær bílveltur á Suðurlandsvegi eftir miðnætti í nótt.

Karlmaður missti stjórn á bíl sínum og lenti á milli akreina næri Hvassahrauni og ung kona velti bifreið sinni í Njarðvík þegar hún var að aka hringtorg.

Hálkublettir eru allt frá Sandskeiði og austur að Markarfljóti samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einnig eru hálkublettir í Þrengslum, á Mosfellsheiði og víðar.

Á Vesturlandi er hálka á Fróðárheiði, Holtavörðuheiði og Brattabrekku. Hálkublettir eru svo undir Hafnarfjalli, í Borgarfirði og á Mýrum.

Á Vestfjörðum er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði en unnið er að hreinsun. Hálkublettir eru á Gemlufallsheiði og Klettshálsi.

Hrafnseyrarheiði er hins vegar ófær vegna snjóflóða og hefur verið síðan í gær. Á Norðurlandi eru hálkublettir á Vatnsskarði og hálka á Öxnadalsheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×