Viðey ófær hjólastólum 2. nóvember 2011 13:00 Snarbrattur rampur við flotbryggjuna hjá Viðeyjarferjunni er torveldur yfirferðar. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það er alveg ljóst að aðgengi fatlaða er mjög ábótavant í Viðey, en þar standa hafnaraðstæður helst í vegi fyrir að fatlaðir njóti eyjunnar til jafns við aðra," segir Berglind Ólafsdóttir, skrifstofustjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Rannveig Grétarsdóttir er framkvæmdastjóri Eldingar sem á og rekur Viðeyjarferjuna. Hún segir aðgengi fatlaðra beggja vegna sundsins stórt vandamál. „Í raun er ógjörningur að koma stórum, rafknúnum hjólastólum um borð og frá borði, og næsta vonlaust að koma hjólastól upp á bryggjuna í Viðey vegna mikils hæðarmunar á flóði og fjöru. Þá liggur að flotbryggjunni í Skarfavör snarbrattur rampur, alsettur torfærum þrepum, sem hjólastólar aka ekki niður," segir Rannveig sem er með tilbúna áætlun til breytinga á bátum Eldingar miðað við þarfir fólks í hjólastólum, en bíður með framkvæmdir þar til lausn finnst í hafnarmálum. Aðgengi fatlaðra til og frá Viðey strandar alfarið á kostnaði, segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri hjá Faxaflóahöfnum. „Allt er hægt fyrir peninga, en framkvæmdin er afar kostnaðarsöm. Aðstæður í Viðey eru með einkar sérstökum hætti og mannvirkið sem þar var byggt á sínum tíma afar hátt. Því er snúið að breyta aðstæðum á dugandi hátt og mannvirkin flókin viðureignar," segir Gísli. Hann segir fimm metra mun á flóði og fjöru við flotbryggjurnar sem nú þjóna Viðeyjarferjunni. „Í lægstu stöðu er mjög bratt upp á sjálfa bryggjuna og líklegt að krani eða lyfta yrði fyrir valinu. Á svæðinu eru bryggjukranar en öryggiskröfur kveða á um annars konar búnað og miklum mun dýrari," segir Gísli. En á hverjum myndi sá kostnaður lenda? „Svarið er óljóst. Í samningi milli Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna var samið um að við byggðum mannvirki í Skarfavör og Bæjarvör hinum megin. Við sjáum því aðeins um hafnarmannvirki en ekki þau sem eru uppi á landi," útskýrir Gísli. Hann segir núverandi mannvirki illa til þess fallin að leysa vandann og staðsetning bryggjunnar í Viðey ekki endilega þá bestu þótt hún sé í skemmstri fjarlægð á milli lands og eyjar. „Í Viðeyjarhöfn er mikill sjógangur og við náttúruöflin að glíma. Því þarf að gera miklar öryggiskröfur og vanda til verka, en auðvelt að leysa vandann ef nógur aur er til þess. Þetta er ekki fjárfesting sem menn horfa í hvort svari kostnaði, enda ekki hægt að meta lífsgæði fatlaðra til fjár." Berglind Ólafsdóttir segir að kostnaðaráætlun og lausnir frá Faxaflóahöfnum yrðu strax skoðaðar jákvætt hjá borginni. „Þá verður undir eins athugað hvort við fáum fjármuni og heimild til að verja þeim í slíka framkvæmd, og í framhaldi hefja úrbætur á aðgengi fatlaðra í eynni, eins og léttari leið upp brekkuna að Viðeyjarstofu og lyftuhúsi aftan á Viðeyjarstofu sem opnar loks aðgang fatlaðra að salernum í kjallara hússins. Draumurinn er að fatlaðir komist í Viðey á eigin vegum sem fyrst, en þangað til tökum við vel á móti þeim og aðstoðum eftir þörfum." thordis@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira