Leigumarkaðurinn að skána 11. desember 2004 00:01
Ástandið á leigumarkaðinum hefur batnað undanfarin ár að mati nefndar á vegum Félagsmálaráðherra. Aðsókn hefur þó sjaldan eða aldrei verið meiri í félagslegar íbúðir á vegum borgarinnar. Nefnd félagsmálaráðherra kannaði leigumarkaðinn í fyrra og kemst að þeirri niðurstöðu að ástandið hafi batnað til muna, framboð á leiguíbúðum hafi aldrei verið meira og nýir leigusalar hafi komið inn á markaðinn. Innleiðing húsaleigubóta um miðjan síðasta áratug og að þær urðu skattfrjálsar árið 2001 hafi skipt sköpum. Þá hafi leigutekjur verið felldar undir fjármagnstekjuskatt en þær voru áður skattlagðar sem launatekjur. Sérstakar húsaleigubætur Reykjavíkurborgar hafi einnig mikið að segja en þeim er ætlað að aðstoða þá sem bíða eftir félagslegu húsnæði. Bent er á að ýmsar breytingar á þessu ári séu líklegar til að gera gott betra, mikið af íbúðarhúsnæði sé í smíðum og nýjar lánareglur, vaxtalækkun og almennar breytingar á húsnæðismarkaði auðveldi fólki að kaupa eigið húsnæði. Í Gallup könnun á leigjendum kemur í ljós að meirihluti þeirra er yngri en 35 ára, kvenkyns og búsettur á höfuðborgarsvæðinu, 17% þeirra eru með börn á framfæri og rétt rúmur helmingur hefur lokið framhaldsnámi eða háskólanámi. Tæpur helmingur segist ekki eiga annarra kosta völ en að leigja og fjórðungur átti erfitt með að finna húsnæði. Meðalleiga er um fimmtíu þúsund krónur fyrir 80 fermetra húsnæði, sem er miklu lægra en reynsla margra leigumiðlana og félagasamtaka í borginni gefur til kynna. Gallup setur þó ýmsa fyrirvara við niðurstöðuna, til að mynda þá að erfitt eða ógerlegt hafi verið að ná til þeirra sem búi við verstu félagslegu aðstæðurnar. Eftirspurnin eftir félagslegu húsnæði hefur í raun vaxið stöðugt undanfarin ár. Nefndin telur koma til greina að veita sérstaka stofnstyrki til byggingar leiguíbúða fyrir sérstaka hópa, svo sem aldraða, öryrkja, námsmenn eða einstæða foreldra sem búa við erfiðar aðstæður og hafa tekjur eða eiga eignir innan tilskilinna marka.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira