35 millljarðar í undanskot 11. desember 2004 00:01
Starfshópur sem kannaði umfang skattsvika hérlendis telur að tekjutap ríkis og sveitarfélaga nemi allt að þrjátíu og fimm milljörðum á ári. Sú starfsemi sem mest er hætt við undanskotum er byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, veitingarekstur og hverskyns persónuleg þjónusta. Geir Harde fjármálaráðherra skipaði nefndina í framhaldi af ályktun Alþingis um að gera bæri úttekt á umfangi skattsvika og svartri atvinnustarfsemi. Niðurstaðan er sú að skattsvikin nemi 8,5-11,5% af heildarskattekjum þjóðarinnar eða um 25 til 35 milljörðum. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að skattsvik í formi vamframtalinna tekna hafi minnkað og skil á virðisaukaskatti færst til betri vegar. Skipulögð skattsvik hafi hinsvegar aukist að mati nefndarinnar og nýjar aðferðir til skattsvika hafi bæst við þær sem fyrir eru, einkum í gegnum erlend samskipti. Ástæður svikanna eru margvíslegar að mati nefndarinnar, en meðal annars er sagt að breytt atvinnuumhverfi og aukin ráðgjöf um hvernig skjóta megi undan skatti, hafi orðið til þess að skattsvik hafi færst í vöxt. Nefndin leggur til að lögum verði breytt í því skyni að koma í veg fyrir að skattalöggjöfin sé brotin með því að íslenskir framteljendur geti nýtt sér skattaparadísir hvers konar og ríki þar sem skattar eru lágir til að koma sér undan því að greiða skatta. Þá þurfa skattayfirvöld að hafa greiðari aðgang að upplýsingum, efla þarf skattaeftirlit og skattarannsóknir og bæta starfsskilyrði skattayfirvalda. Þá vill nefndin að ábyrgð svokallaðra ráðgjafa sem standi að vafasamri eða óábyrgri ráðgjöf í skattamálum, rangfræðu bókhaldi eða rangri framtalsgerð verði aukin, og eins persónuleg ábyrgð eigenda og forsvarsmanna fyrirtækja vegna skattalagabrota fyrirtækjanna verði skýrð.
Fréttir Innlent Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Sjá meira