Heimaþjónusta ljósmæðra í uppnámi 28. febrúar 2006 22:10
Samningar um heimaþjónustu milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins rennur út á miðnætti. Ljósmæðrum voru kynnt drög að nýjum samningi í dag en skilaboð þeirra eru skýr, þær sætta sig ekki við samninga undir kostnaðargreiningu. Allt stefnir í að ófremdarástand skapist á fæðingarstofnunum landsins ef samningar nást ekki sem fyrst en rúm 60% mæðra kjósa að fara heim um sólarhring eftir fæðingu og nýta sér heimaþjónustu. Um 7-8 börn fæðast á hverjum sólarhring og því er hætta á sængurpláss fyllist fljótlega en á sængurkvennadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss eru 19 pláss og á Hreiðrinu eru sex pláss. Ljósmæður eru ósáttar voð þau tilboð sem Tryggingastofnun ríkisins hefur boðið þeim fram til þessa en þær segja verktatagreiðslur fyrir heimaþjónustu lágar, auk þess sem þær fá ekki greitt aukalega fyrir útlagðan kostnað og akstur til skjólstæðinga sinna. Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir að samningar verði lausir á miðnætti en ljósmæður hafi ákveðið að sinna áfram þeim mæðrum sem þær þjónusta um þessar mundir. Það sé þó ekki víst að ljósmæður fái laun borguð fyrir þá vinnu sína, það eigi eftir að reyna á það. Dvöl á sængurkvennadeild er mun kostnaðarsamari fyrir ríkið en heimaþjónusta ljósmæðra. Guðlaug segir að einn sólarhringur á sængurkvennadeild kosti ríkið álíka mikið og vika í heimaþjónustu ljósmæðra. Það geri um 75 milljónir krónur á ársgrundvelli. Rósa Bragadóttir, deildarstjóri Hreiðursins, segir að það bagalegt ef heimaþjónustu ljósmæðra nýtur ekki við. Hún segir að slæmt ástand geti skapast ef ekki verður fundin lausn á deilunni en engar ráðstafanir hafa verið gerðar á Hreiðrinu vegna þessa.
Fréttir Innlent Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira