Þyrlan á þönum síðan klukkan 11 í morgun Atli Ísleifsson skrifar 13. júlí 2014 21:12 Guðbrandur Örn Hjá Landsbjörgu segir að það sé aukið álag á öllum viðbragðsaðilum út af aukinni umferð ferðamanna. Vísir/Vilhelm „
Dagurinn hefur verið mjög annasamur þar sem við höfum þurft að sinna tveimur mjög erfiðum verkefnum í dag,“ segir Guðbrandur Örn Arnarson hjá bakvakt landsstjórnar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í samtali við Vísi. Guðbrandur vísar þar til fjórhjólaslyssins í Seljadal og göngumannsins sem var illa haldinn nærri Hesteyri á Hornströndum fyrr í dag. „Samvinna björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar skipti sköpum í dag.“ Guðbrandur segir þyrlu Landhelgisgæslunnar hafa til aðstoðar í tilvikum. Hann segir að björgunarsveitarmenn hafi fyrstir komið til aðstoðar og hlúð að mönnum og síðan hafi þyrlan komið og flutt slösuðu mennina í burtu. Hann segir að á Hornströndum hefði það reynst mjög löng og erfið leið fyrir höndum ef þyrlan hefði ekki komið til aðstoðar. „Miðað við meiðsli mannsins hefði sá flutningur verið mjög óþægilegur fyrir manninn.“ Að sögn Guðbrands hefur þyrlan verið á þönum síðan klukkan ellefu í morgun. „Þetta er náttúrulega mjög krítískt ástand þegar svona gerist. Við erum með alltof fáar þyrlur og þyrftum helst að vera betur búin. Almennt séð eiga að vera tvær þyrlur, en vandinn er sá að það þarf svo lítið út af að bregða. Þá erum við komin í það ástand að það skortir áhafnir. Út af hvíldarreglum og kostnaði þá er alls staðar þrengt að. Mikil aukning ferðamanna spilar sömuleiðis mjög stóra rullu. Það er aukið álag á öllum viðbragðsaðilum út af aukinni umferð ferðamanna.“
Tengdar fréttir Með mikla áverka eftir fjórhjólaslys Karlmaður var fluttur með þyrlu á sjúkrahús í dag sem lent hafði í fjórhjólaslysi í Laugadal á Vesturlandi. 13. júlí 2014 17:12 Fannst beinbrotinn og með höfuðáverka á Hornströndum Björgunarsveitir frá Hnífsdal, Bolungarvík og Ísafirði hafa verið kallaðar út eftir að tilkynning barst um slasaðan göngumann á gönguleiðinni milli Hesteyrar og Hlöðuvíkur. 13. júlí 2014 14:44 Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Fleiri fréttir Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Sjá meira
Með mikla áverka eftir fjórhjólaslys Karlmaður var fluttur með þyrlu á sjúkrahús í dag sem lent hafði í fjórhjólaslysi í Laugadal á Vesturlandi. 13. júlí 2014 17:12
Fannst beinbrotinn og með höfuðáverka á Hornströndum Björgunarsveitir frá Hnífsdal, Bolungarvík og Ísafirði hafa verið kallaðar út eftir að tilkynning barst um slasaðan göngumann á gönguleiðinni milli Hesteyrar og Hlöðuvíkur. 13. júlí 2014 14:44