Emil á leið til Tottenham 13. desember 2004 00:01
Efnilegasti leikmaður Landsbankadeildarinnar á síðasta tímabili, Emil Hallfreðsson, er á leið til enska stórliðsins Tottenham Hotspur. Samkomulag náðist á milli FH og Tottenham í gær um kaupverð á Emli og því á Emil sjálfur aðeins eftir að semja við félagið en hann á ekki von á að það verði mikið vandamál. "Það liggja fyrir drög að samningi sem ég er sáttur við og því má mikið gerast ef ég sem ekki við liðið á næstu dögum," sagði Emil við Fréttablaðið í gær en hann mun gera tveggja og hálfs árs samning við félagið með möguleika á eins árs framlengingu ef vel gengur. FH-ingar vildu ekki gefa upp hvað þeir fengu mikið fyrir Emil en orðuðu það þannig að þeir myndu fá pening fyrir hann kæmist hann í liðið og stæði sig vel sem þeir hafa fulla trú á að hann geri. Emil verður annar Íslendingurinn sem gengur í raðir Tottenham en Guðni Bergsson lék með félaginu á sínum tíma. Emil, sem hefur haldið með Liverpool frá því í barnæsku, var að átta sig á hlutunum í gær en hann var að vonum kátur enda langþráður draumur að rætast. "Þetta er það sem mig hefur dreymt um frá því ég var krakki og það er ótrúlegt að draumurinn sé loksins að rætast. Mig hefur alltaf langað til þess að spila í Englandi enda er það mekka fótboltans. Ég neita því ekki að það er frekar skrítið að þetta sé að gerast og ég veit að þetta er tækifæri sem ekki allir fá og því er ég staðráðinn í að nýta það vel," sagði Emil Hallfreðsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Elvar Már til Póllands Körfubolti Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Körfubolti „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Fótbolti Fleiri fréttir Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Elvar Már til Póllands „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Cifuentes tekur við Leicester Sænsku meistararnir örugglega áfram Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Elvis snúinn aftur „Allt orðið eðlilegt á ný“ Liverpool tilbúið að slá metið aftur Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Púttaðstaða eins og hjá Tiger og Rory Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður „Ekki jafn miklar þreifingar og ekki jafn lokaður leikur“ KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Segir að HM félagsliða verði stærri en Meistaradeildin Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Sjá meira