Tekist á um tvær tillögur 19. nóvember 2010 19:30
Sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn Vinstri grænna leggja til á flokksráðsfundi sem hófst síðdegis, að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði slitið nú þegar. Í annarri ályktun sem fleiri atkvæðabærir flokksmenn flytja, er lýst yfir stuðningi við ríkisstjórnina og þar með að viðræðurnar haldi áfram. Í fyrri tillögunni er lagt til að yfirstandandi aðlögunarferli að Evrópusambandinu verði stöðvað, rýnivinnu verði hætt og þeim lokið fyrir mars á næsta ári. Í tillögu sem 40 atkvæðabærir menn skrifa undir er stefna flokksins ítrekuð. Ljúka eigi viðræðuferlinu og leggja niðurstöðuna fyrir almenning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Um þessar tillögur verður rætt á fundinum í kvöld. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði að menn þyrftu að gera það upp við sig hvort þeir ætluðu að láta Evrópumálin í vaxandi mæli ná völdum á umræðunni. „Við munum hér sum inni í salnum tvenna tímana og vitum hvað það er sem er hættulegast af öllu í félags- og hugsjónastarfi af þessu tagi. Við vitum það nákvæmlega og við skulum ekki sleppa þeim fjanda, sundurlyndisfjanda, lausum." Þá sagði Steingrímur: „Um Evrópumálin sem menn hafa reynt að draga upp þá mynd að yrði eitt til umræðu hér á þessum fundi og blóðug átök um það mál þá vil ég bara segja þetta. Munum að það er ekki ágreiningur um grundvallarstefnu flokksins í því máli. Berum umræðuna ekki fram undir þeim formerkjum. En það hafa verið miklar deilur um málsmeðferð, um þá stöðu sem uppi er, hvað sé rétt að gera í því og hvernig við eigum að taka á þeim málum. Það er skiljanlegt vegna þess að þessi vegferð okkar er erfið."
Tengdar fréttir Steingrímur: Nýtur forystan stuðnings? „Þetta snýst um það að koma Íslandi aftur á fæturnar. Við þurfum samstöðu til þess. Það verður erfitt að standa í þessu ef við erum eitthvað hölt því aðstæðurnar eru nú nógu krefjandi án þess. Við þurfum auðvitað að vita - forysta flokksins, þingflokkur og forystusveit - höfum við stuðning og umboð frá flokknum og þessari stofnun til að halda þessari baráttu áfram. Við skulum bara fá það á hreint,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann ávarpaði flokksráðs Vinstri grænna í dag. 19. nóvember 2010 17:56 Tekist á um Evrópusambandið hjá vinstri grænum Búast má við að hart verði tekist á um Evrópusambandsmálin á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem hefst í dag. Formaður flokksins reiknar með hreinskiptum skoðanaskiptum, en segir engan vafa á því hver stefna flokksins sé í evrópumálum. 19. nóvember 2010 12:28 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Sjá meira
Steingrímur: Nýtur forystan stuðnings? „Þetta snýst um það að koma Íslandi aftur á fæturnar. Við þurfum samstöðu til þess. Það verður erfitt að standa í þessu ef við erum eitthvað hölt því aðstæðurnar eru nú nógu krefjandi án þess. Við þurfum auðvitað að vita - forysta flokksins, þingflokkur og forystusveit - höfum við stuðning og umboð frá flokknum og þessari stofnun til að halda þessari baráttu áfram. Við skulum bara fá það á hreint,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann ávarpaði flokksráðs Vinstri grænna í dag. 19. nóvember 2010 17:56
Tekist á um Evrópusambandið hjá vinstri grænum Búast má við að hart verði tekist á um Evrópusambandsmálin á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem hefst í dag. Formaður flokksins reiknar með hreinskiptum skoðanaskiptum, en segir engan vafa á því hver stefna flokksins sé í evrópumálum. 19. nóvember 2010 12:28