Ráðherra fer að ráðum Hafró um loðnukvótann 19. nóvember 2010 15:39
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerðir um loðnuveiðar. Samkvæmt þeim er heimilt að veiða 200 þúsund tonn af loðnu í íslenskri fiskveiðilögsögu á tímabilinu frá 23. nóvember 2010 til og með 30. apríl 2011. Í tilkynningu segir að heildaraflamark í loðnu byggir á ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Stofnunin framkvæmdi haustmælingu á loðnu á tímabilinu frá 24. september til 8. nóvember á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Loðnumælingarnar fóru fram fyrr og náðu yfir lengri tíma en á undanförnum árum þegar þær voru gerðar á tímabilinu frá því um miðjan nóvember og fram í desember. Þetta leiddi aftur á móti til þess að unnt var að fara miklu víðar en undanfarin ár þar sem enginn lagnaðarís var til trafala líkt og oft hefur verið í nóvember og desember. Því telur Hafrannsóknastofnunin að mælingar á stærð stofnsins nú séu að líkum marktækari en mælingar undanfarinna ára. Af þessum 200 þúsund tonnum fara um 139 þúsund tonn til íslenskra loðnuveiðiskipa sem hafa aflamark í loðnu en rúmlega 60 þúsund tonn fara til erlendra skipa samkvæmt milliríkjasamningum. Rétt er að vekja athygli á að niðurstöður haustmælinga Hafrannsóknarstofnunar gefa ekki tilefni til að ætla að veiðiheimildir vegna loðnu verði auknar á tímabilinu. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur áherslu á að veiðum og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti, að sem mestur þjóðhagslegur ábati skapist af þessari auðlind og loðnuafli nýtist sem best til manneldis. Ríkar skyldur hvíla á útgerðum loðnuskipa að koma til móts við væntingar markaðarins um loðnuhrogn og vandaða meðferð hráefnis.
Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Fleiri fréttir Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Sjá meira