Vindmælingar hér á landi enn á algjöru byrjunarstigi 19. nóvember 2010 04:45 Þó vindmælingar í þeirri hæð sem nauðsynleg er fyrir vindorkuvirkjanir séu á byrjunarstigi hér á landi segir Úlfar að verkefnið lofi góðu. Fréttablaðið/stefán
Þær vindmælingar sem nauðsynlegar eru til viðmiða fyrir vindmyllur eru á algöru byrjunarstigi hér á landi. Starfshópur innan Landsvirkjunar, ásamt Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun, hefur nú hafist handa við slíkar mælingar og segir Úlfar Linnet, sérfræðingur í orkuathugunum hjá Landsvirkjun, enn langt í land. „Þau tæki sem nauðsynleg eru til mælinga í þessari hæð eru einfaldlega ekki til hér á landi,“ segir hann. „Það þarf í raun að vinna allt frá grunni og fá þá þekkingu sem við þurfum frá útlöndum. En þetta gengur vonum framar.“ Hópurinn er hluti af Icewind, samnorrænu rannsóknarverkefni sem styrkt er af Norrænu ráðherranefndinni. „Í gegnum verkefnið fáum við mikið af samböndum og þekkingu í þessum málum. Þetta er vel yfirstíganlegt vandamál,“ segir Úlfar. Þær niðurstöður sem fengist hafa nú þegar eru unnar þannig að vinnslugeta vindmyllu er metin út frá hlutfalli nýtingartíma á hverju svæði. Þannig eru niðurstöðurnar notaðar til að greina hvaða staðir eru taldir álitlegir til framkvæmda. Í þeim mælingum sem hafa verið gerðar nú þegar til þess að finna út mögulega staði á landinu til vindvirkjana hefur komið í ljós að Suðurlandsundirlendið virðist henta hvað best. Þó er verið að athuga fleiri staði með fjölmörg atriði í huga. „Það fer eftir því hversu mikil orka er til staðar og hvernig samgöngur eru,“ segir Úlfar. „Einnig eru metnir tengimöguleikar inn á flutningsnet, hvort það sé byggð í nágrenninu, landrými og líkur á ísingu. Friðlýst svæði og fuglalíf eru auðvitað einnig veigamikil atriði.“ Frumútgáfa af svokölluðum Vindatlas er til nú þegar en uppfærðar rannsóknir verða tilbúnar eftir 2 til 3 ár. Samkvæmt fyrstu rannsóknum bendir allt til þess að hér á landi sé nægilega stöðugur vindur til virkjana. Úlfar segir þumalputtaregluna vera þá að myllurnar slökkvi á sér við 25 metra á sekúndu og slíkt sé fátítt hér á landi. Algengustu myllurnar í Danmörku eru um 70 metra háar, en þær hæstu í heimi eru tæpir 200 metrar að hæð. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira