Þingkonur hvetja Marinó til að endurskoða afsögn 19. nóvember 2010 15:24 Marinó G. Njálsson.
Þingkonurnar Eygló Harðardóttir, Lilja Mósesdóttir og Margrét Tryggvadóttir úr Framsóknarflokki, VG og Hreyfingunni, hvetja Marinó G. Njálsson stjórnarmann úr Hreyfingunni til þess að endurskoða þá ákvörðun sína að segja sig úr stjórn Hagsmunasamtaka Heimilanna. Marinó sagði sig úr stjórninni vegna fyrirhugaðrar umfjöllunar Fréttatímans um skuldamál hans. Í sameiginlegri yfirlýsingu þingkvennanna segir að Marinó hafi verið beittur málsvari félagsmanna í samtökunum sem og annarra skuldsettra heimila. „Yfirlýstur tilgangur samtakanna er að vera frjáls og óháð hagsmunasamtök á neytendasviði, til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu. Helstu skammtímamarkmið samtakanna eru að taka á brýnum fjárhagsvanda heimilanna í landinu, vegna þess ástands sem skapast hefur í efnahagsmálum og forða heimilum frá ósanngjarnri eignaupptöku, óbærilegum skuldaklyfjum og upplausn," segir ennfremur. Þær benda á lífskjararannsókn Hagstofu Íslands þar sem fram kemur að næstum helmingur heimila eigi erfitt með að ná endum sagma. „Eðlilegt er að baráttumenn fyrir hagsmunum hafi hagsmuna að gæta á því sviði. Eins má gera ráð fyrir að stjórnarmenn Öryrkjabandalagsins séu öryrkjar, stjórnarmenn í launþegahreyfingu launþegar og stjórnarmenn í Blaðamannafélaginu fjölmiðlamenn. Því ætti ekki að koma neinum á óvart að stjórnarmenn Hagsmunasamtakanna skuldi, líkt og 2/3 heimila landsins." Þá segja þær að sérstök fréttaumfjöllun um skuldastöðu einstakra stjórnarmanna hljóti að vekja upp spurningar um „hvort verið sé að fara í manninn, en ekki málefnið." „Skuld er ekki skömm og má ekki vera skömm," bæta þær við. „Því miður hefur alltof oft heyrst í umræðunni að skuldarar séu óráðsíumenn og séu fyrst og fremst að reyna að hygla sjálfum sér í baráttu sinni. Slíkur málflutningur er að okkar mati ómálefnalegur og dæmir sig sjálfur. Við hvetjum Marinó til að endurskoða ákvörðun sína um að segja sig úr stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna og fjölmiðla til að íhuga hver sé tilgangur umfjöllunnar um persónulega hagi talsmanna hagsmunasamtaka hverju sinni."
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Sjá meira