Rænd tvisvar á einni viku á götum Kaupmannahafnar 19. nóvember 2010 00:01 Athena lenti í því að vera rænd tvisvar á einni viku í Kaupmannahöfn. Hún flutti þangað fyrir þremur mánuðum og leggur stund á nám í tískumarkaðssetningu.fréttablaðið/vilhelm „
Núna langar mig að líma allt dótið mitt á mig svo það verði ekki tekið af mér,“ segir Athena Ragna, fyrirsæta og nemi í tískumarkaðssetningu í Kaupmannahöfn. Athena lenti í því á dögunum að vera rænd tvisvar á einni viku á götum Kaupmannahafnar. Ránsalda gengur yfir borgina þessa dagana og danskir fjölmiðlar hafa hvatt almenning til að vera á betur á varðbergi en áður. Athena vonast til að reynsla hennar verði öðrum víti til varnaðar, enda Kaupmannahöfn gríðarlega vinsæll viðkomustaður Íslendinga, sem hafa hingað til ekki nefnt borgina á nafn í sömu andrá og vasaþjófa. Þegar fyrra ránið var framið var Athena á leiðinni á Ráðhústorgið á sunnudegi. Mikið af fólki var á ferðinni og hún rakst utan í nokkra á leið sinni. „Svo þegar ég ætlaði að fá mér að borða með vinkonu minni var ekkert veski, engin myndavél og enginn sími. Ég tók ekkert eftir þessu,“ segir hún. „Ég tek fulla ábyrgð á seinna ráninu því þá var ég bara kærulaus. Ég lét töskuna mína frá mér þegar ég var á Strikinu. Ég sá engan í kringum mig nema fólkið sem var með mér. Svo 30 sekúndum seinna var taskan horfin.“ Seinni þjófarnir komust á brott á með það sem fyrri þjófarnir náðu ekki: eldri bráðabirgðasíma, húslykla og lestarkort. Athena tekur þessari einstöku óheppni með jafnaðargeði. „Í fyrsta skipti var ég miður mín, en í annað skipti var ég bara „nei, kommon!“. Mamma mín skellihló líka þegar hún frétti þetta,“ segir hún og játar að hún sé miklu varkárari í dag. Fólkið í kringum Athenu hefur einnig orðið fyrir barðinu á þjófum sem hafa verið sérstaklega klókir undanfarið. „Það komu stelpur í heimsókn yfir helgi og tvær af þeim voru rændar, strákurinn sem ég bý með var rændur, tvær stelpur úr bekknum mínum voru rændar. Þetta er alltaf að gerast,“ segir Athena. Fréttablaðið greindi frá ævintýrum Athenu í sumar, en til stóð að hún léki lítið hlutverk í kvikmynd Guy Maddin, Keyhole. Kreppan kom í veg fyrir það þegar hún var komin með handrit og flugmiða í hendurnar á leið til Kanada, þar sem myndin er tekin upp. Framleiðendurnir höfðu ekki efni á að greiða henni laun og uppihald og var því heimastúlka fengin í hlutverkið. „Þetta var búið að vera í gangi frá því í febrúar. Ég var heillengi að sannfærast, en svo var þetta loksins að fara að gerast,“ segir Athena sem tekur óheppninni með stóískri ró. „Skítur skeður.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira