Olíuvinnsla hér við land? 18. október 2004 00:01
Eftir því sem olíuverð hækkar og ófriður eykst á helstu olíuvinnslusvæðum veraldar leita menn nýrra olíuvinnslusvæða á norðurhveli. Ýmsar vísbendingar eru um olíu og gas á íslensku hafsvæði. Hafréttarstofnun Íslands gekkst fyrir málstofu í dag um olíurétt og nýtingu olíuauðlinda í Norður-Atlantshafi. Meðal fyrirlesara voru sérfræðingar frá Írlandi, Færeyjum, Noregi og Grænlandi þar sem olíuleit er alls staðar á veg komin, ef ekki hreinlega hafin. Að sögn Sveinbjörns Björnssonar, sérfræðings hjá Orkustofnun, er vitað um gasmyndun í Öxarfirði og á Tjörnesi en ekki er búið að rannsaka það nóg til að vita hvort olíu og gas í vinnanlegu magni er að finna þar og á svæðinu á Jan Mayen hryggnum. Sveinbjörn segir vilja til að fá reynd og stór fyrirtæki til rannsókna en þau sé enn upptekin af öðrum olíuvinnslusvæðum á jörðinni. Hann býst þó við að það komi að því að menn renni hýru auga til olíuvinnslu á norðurslóðum. Eftir því sem minna verði annars staðar af hagstæðum olíulindum, eða meira barist í olíulöndum, þá færi olíufélögin sig yfir á svæði þar sem eitthvað sé að finna. Auk þess hefur hækkandi olíverð áhrif því það réttlæti meiri rannsóknarkostnað. Allt þetta eykur líkurnar á því að meira verði rannsakað hér við strendur segir Sveinbjörn. Áður en hægt verður að veita leitarleyfi þarf að ganga frá lögum um slíkt, sem og reglugerðum, auk þess sem eftir á að ná samkomulagi um sameiginleg svæði. Landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna sker úr í slíkum málum en gagnaöflun stendur yfir og verður skýrsla að liggja fyrir árið 2009. Sveinbjörn segir ýmislegt hægt að læra af reynslu nágranna okkar í austri og vestri. Þó árangur sé kannski ekki mikill, nema hjá Noregi, þá hafi þeir aðilar reynslu, t.d. varðandi lög og reglugerðir. Úr því sé svo valið efitr því hvað henti best hér á landi.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira