Kallað eftir víðtækri sátt 2. maí 2009 04:00 Gylfi Arnbjörnsson.
Óvenjumargir tóku þátt í kröfugöngum verkalýðsins víða um land í gær. Þúsundir tóku þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Hópur anarkista púaði og barði búsáhöld meðan Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flutti ræðu sína á Austurvelli. Lagt var af stað frá Hlemmi fljótlega eftir hádegi og gengið niður Laugaveginn alla leið niður á Austurvöll þar sem haldinn var hátíðarfundur. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, var einn þeirra sem fluttu ávörp. Hann sagði meðal annars að „erfitt og sársaukafullt verkefni“ biði á vinnumarkaði þar sem gera þyrfti nýjan sáttmála milli vinnumarkaðar og stjórnvalda um forsendur varanlegs stöðugleika. Ná þyrfti víðtækri sátt um hvernig þjóðin ynni sig út úr efnahagsvandanum. Gylfi segir að í svona stórum samtökum verði að una því að fólk mótmæli. „Ég hef umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra,“ segir hann. „Ég er mjög rólegur yfir þessu og hef þolinmæði gagnvart þessu. Þetta stuðaði mig ekkert, ég virði bara skoðanir annarra,“ segir hann. „Enn bólar ekkert á raunhæfum ráðstöfunum,“ sagði Þórveig Þormóðsdóttir, formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins, í ræðu sinni. „Þvert á móti hefur verið boðaður niðurskurður í velferðarkerfinu og er hans þegar farið að bæta.“ Hælisleitendur vöktu athygli á málstað sínum, meðal annars með því að gefa mat. Fjöldi þátttakenda í kröfugöngunni á Akureyri var í sögulegu hámarki, að sögn lögreglunnar á Akureyri, sem minnist þess ekki að hafa séð svo mikinn fjölda í kröfugöngu þar. Hátíðarhöldin gengu vel fyrir sig enda léttskýjað og fallegt veður á Akureyri. Á Vestfjörðum var einnig afburðagóð þátttaka og hátíðarhöldin fóru vel fram. ghs@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira