Hjúkrunarfræðingar flýja álag á spítölunum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. júní 2007 19:11
Dæmi eru um að sjúklingar þurfi að dvelja á bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut í allt að fjóra sólarhringa vegna skorts á öðrum úrræðum. Þetta segir hjúkrunarfræðingur sem þar hefur starfaði í á sjötta ár en hefur nú sagt upp störfum eftir að hafa fengið nóg af því erfiða ástandi sem ríkir á bráðadeildinni. Mikið hefur undanfarið verið fjallað um manneklu á spítölunum og álag á starfsfólki. Katrín Jónsdóttir hefur starfað sem hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut í á sjötta ár. Hún hefur nú sagt upp störfum þar sem hún er orðin langþreytt á álaginu, lélegum vinnuaðstæðum og launakjörum sínum. Katrín segir þrengslin mikil á deildinni. Þangað komi mikið veikt fólk og í mörgum tilvikum krabbameinssjúklingar sem þurfa mikla aðhlynningu og að vera í einangrun en þeir komist ekki á legudeildir vegna plássleysis. Hún segir dæmi um að sjúklingar hafi þurft að vera þar í allt að fjóra sólarhringa þar sem engin deild gat tekið við þeim. Hún segir aðstæður slæmar en sjúklingar séu meðal annars í gluggalausum stofum þar sem loftræstingin hafi ekki undan og loftleysi sé mikið. Katrín hættir störfum á deildinni í lok júlí og yfirgefur um leið hjúkrunarstarfið. Hún segir mikilvægt að stjórnvöld á spítalanum bregðist við ástandinu.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira