Ríkið tekur æ stærri skerf af bensínverði 9. desember 2010 03:30 Runólfur Ólafsson
Hver er hlutur ríkisins af hverjum seldum bensínlítra? Þegar litið er aftur til desember 2008 á meðfylgjandi skýringarmynd má sjá að ríkið tók til sín 70 krónur af hverjum seldum lítra, og hefur því aukið sinn hlut um 34 krónur á lítrann, sem er nær 50 prósenta aukning. Ef litið er til viðmiða Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), sem gera ráð fyrir að fjölskyldubíll eyði um 2.000 lítrum af bensíni, sést að þar er um að ræða aukna skattheimtu um 68.000 á hvern bíl á ári. Frá hruni hafa bensíngjöld verið hækkuð fjórum sinnum. Fyrsta hækkunin varð í desember 2008 þegar vörugjöld voru hækkuð um rúmar fimm krónur á lítrann, en þeim var fylgt eftir með ríflegri hækkun vorið eftir þegar almennt bensíngjald hækkaði um 10 krónur á lítrann. Í byrjun þessa árs voru svo almenn gjöld hækkuð á ný auk þess sem lagt var á kolefnisgjald, sem er 2,6 krónur á hvern lítra. Þessar miklu skattahækkanir koma samhliða gríðarlegri hækkun á heimsmarkaðsverði bensíns og samanlögð áhrif af þessum tveimur þáttum eru undirliggjandi í þeim miklu hækkunum á útsöluverði undanfarna mánuði. Enn er svo frekari skattahækkana að vænta um næstu áramót þar sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 4 prósenta hækkun á bensíngjöldum og jafnframt verður kolefnisgjaldið hækkað upp í 3,9 krónur á lítrann. Það eru fjórar krónur á hvern lítra að minnsta kosti og telja má nær öruggt að þær hækkanir munu skila sér í hærra útsöluverði. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir í samtali við Fréttablaðið að um alvarlegt mál sé að ræða. „Þetta er nokkurs konar aðför að ákveðnum lífsgildum þar sem bíllinn gefur fólki fjölbreyttari möguleika á búsetu og atvinnu og er auk þess mikilvægt öryggistæki." Runólfur segir FÍB einnig hafa bent á að hækkanir sem þessar geti í raun haft neikvæð áhrif á hagkerfið þar sem hærra bensínverð hefur í för með sér samdrátt í ferðalögum, og þar af leiðandi minni tekjur af ferðamennsku. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Er Ísland í Meistaradeildinni eða utandeildinni? Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Sjá meira