Ásmundur sammála Lilju - fjárlögin rædd áfram í dag 9. desember 2010 12:13 Ásmundur Einar hefur áhyggjur af fjárlagafrumvarpinu í núverandi mynd Mynd: Anton Brink
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, hefur áhyggjur af þeim mikla niðurskurði sem boðaður er í fjárlagafrumvarpinu. Hann tekur því undir með Lilju Mósesdóttur, þingmanni Vinstri grænna og formanni viðskiptanefndar, um að niðurskurðarhugmyndir séu mögulega of miklar miðað við spár um dræman hagvöxt. Lilja lýsti þessum áhyggjum sínum á ræðu á Alþingi í nótt og tók Ásmundur undir með henni í ræðu sem hann hélt skömmu síðar. Ásmundur gekk þó ekki jafnt langt og Lilja sem lýsti því yfir að hún ætlaði að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarpið ef það yrði lagt fram í núverandi mynd. Ásmundur benti á að samdrátturinn í ár hafi verið mun meiri en gert var ráð fyrir í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðnum frá 2008. Þá var búist við því að hagvöxtur stæði í stað þetta árið og að á næsta ári, 2011, yrði hann þrjú prósent. Raunin er hins vegar sú að hagvöxturinn í ár var neikvæður um þrjú prósent og spár gera ráð fyrir að hann verði líklega öðru hvoru megin við eitt prósentið á næsta ári. „Verði raunin sú þá er það gríðarlegt áhyggjuefni," sagði Ásmundur í ræðu sinni. Hann segir nauðsynlegt að Íslendingar spyrji sig hvort þeir séu að festast í neikvæðum vítahring þar sem þær tillögur sem lagðar eru fram í fjárlagafrumvarpinu geti mögulega haft neikvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu í landinu. Til stendur að ljúka annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið á Alþingi í dag og hefst þingfundur klukkan tvö. Að umræðu lokinni er stefnt að atkvæðagreiðslu en umræðum í nótt var frestað þegar þingfundur hafði staðið til klukkan fögur.
Mest lesið Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Sjá meira