Yngstu börnin færð og félagsmiðstöðin líka 9. desember 2010 04:00 Á Selfossi hafa verið kynntar hugmyndir um að sameina undir eitt þak rekstur Vallaskóla, sem nú er rekinn í Sandvíkur- og Sólvallaskóla. Fréttablaðið/ÓKÁ
Uppi eru ráðagerðir í Árborg um að leggja niður skólahald í elsta starfandi grunnskólahúsnæði Selfoss og leigja húsið út. Vallaskóli á Selfossi hefur síðustu ár verið starfræktur í tveimur aðskildum skólum, Sandvíkurskóla þar sem eru nemendur frá fyrsta og upp í fjórða bekk, og Sólvallaskóla fyrir nemendur frá fimmta og upp í tíunda bekk. Samkvæmt áætlunum sem kynntar hafa verið nemendum, foreldrum og kennurum stendur til að yngstu deildirnar fjórar færist í húsnæði Sólvallaskóla. Einnig verði endurnýjað húsnæði við Sólvallaskóla þar sem félagsmiðstöðin Zelsíus er til húsa þannig að henti til kennslu yngstu bekkjardeildanna. Félagsmiðstöðin færist svo í annað húsnæði í eigu bæjarins. Með breytingunum er áætlað að nokkur sparnaður náist fram. Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, segir að þótt skólanefnd eigi enn eftir að taka ákvörðun um flutninginn sé í nýsamþykktri fjárfestingaráætlun bæjarins gert ráð fyrir kostnaði við að breyta húsnæði félagsmiðstöðvarinnar í kennsluhúsnæði. Þegar Ásta og Guðbjartur Ólason, skólastjóri Vallaskóla, fóru nýverið yfir fyrirhugaðar breytingar með bekkjartenglum í hópi foreldra skólabarna í Vallaskóla kom fram í máli Guðbjarts að breyting á húsnæðismálum skólans hefði verið fyrirhuguð í nokkur ár. Nemendum í skólanum hefur fækkað með tilkomu Sunnlækjarskóla, annars grunnskóla í bænum, fyrir nokkrum árum. Nú sé hins vegar komið jafnvægi á fjölda nemenda og aldursskiptingu í samspili við hinn skólann og tímabært að huga að húsnæðismálunum.- óká
Mest lesið Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Fleiri fréttir Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Sjá meira