Innlent

Minni sala á nautakjöti

Sala á nautakjöti var 13,5 % minni í maí miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt yfirliti frá Landssamtökum sláturleyfishafa. Sömu sögu má segja um sölu á 12 mánaða tímabili, frá 1. júní 2003 til 31. maí 2004 hefur salan dregist saman um 18.1 tonn miðað við sama tímabil árið áður. Þrátt fyrir að auknin hafi orðið á slátrun ungneyta dugir það ekki til að vega upp á móti mikilli fækkun sláturgripa í flokkum ungkálfa, úrvalsgripa, ungkúa og kúa. 99 færri ungkálfum var slátrað, slátruðum úrvalsgripum fækkaði um 37, ungkúm fækkaði um 80 gripi og 162 færri kúm var slátrað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×