Rúmlega átta þúsund börn eiga atvinnulausa foreldra 25. febrúar 2009 16:30 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra ávarpaði í dag málþing nemenda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands um áhrif efnahagsþrenginga á fjölskylduna. Í máli hennar kom meðal annars fram að rúmlega átta þúsund börn eigi foreldra án atvinnu. Í lok október var þessi tala tæplega þrjú þúsund. Í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu kemur fram að ráðhera hafi lagt áherslu á nauðsyn þess að samfélagið veiti fjölskyldum sem búa við erfiðar aðstæður sem mestan stuðning til að draga úr hættu á félagslegum vandamálum til skemmri og lengri tíma. „Ráðherra sagði mikilvægt að byggja á því sem vel hefur verið gert annars staðar en varast vítin. Hún benti á að mikil þekking væri til staðar hér á landi sem bæri að nýta, nefndi umfangsmiklar rannsóknir sem hér hafa verið gerðar á högum barna og fjölskyldna og ræddi mikilvægi Rannsóknarseturs í barna- og fjölskylduvernd á þessu sviði." Í máli ráðherra kom fram að sérstaklega þurfi að huga að börnum foreldra sem hafa misst atvinnu sína. Verulega hefur fjölgað í þeim hópi. Í lok október áttu tæplega þrjú þúsund börn foreldra án atvinnu en í lok síðasta mánaðar voru þau rúmlega átta þúsund. Af þeim áttu um fjögur þúsund og fjögurhundruð börn atvinnulausan föður en tæplega fjögurþúsund börn atvinnulausa móður. Ráðherra sagði í ávarpi sínu að hún hefði nú beðið Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd að koma með tillögur til félags- og tryggingamálaráðherra og Velferðavaktarinnar um það hvernig best megi standa vörð um hagsmuni barna í landinu, hvaða rannsóknir séu nú nauðsynlegar og hvaða atriðum þurfi sérstaklega að huga að í þessum efnum.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Öll hin látnu um og undir tvítugt Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Fleiri fréttir Öll hin látnu um og undir tvítugt „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Sjá meira