Sætir gagnrýni þróunarríkja 24. júlí 2004 00:01
Fulltrúi Íslands í Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO, Stefán Haukur Jóhannesson, hefur sætt opinberri gagnrýni viðskiptaráðherra þróunarríkjanna fyrir að hafa haft að engu áhyggjur þeirra af afleiðingum þess að alþjóðlegum tollareglum verði breytt á þann hátt sem lagt er til. Alþjóðlegar stofnanir hafa tekið undir gagnrýnina og segja að ákvörðun Stefáns Hauks, að taka ekki til greina athugasemdir fulltrúa þróunarríkjanna, geti staðið í vegi fyrir frekari framþróun í fátækustu ríkjum heims. Stefán Haukur er formaður NAMA, samninganefndar á vegum WTO um vöruviðskipti ótengdum landbúnaði. Nefndin skilaði nýlega áliti til framkvæmdarstjórnar WTO varðandi niðurskurð á tollum á vörum. Óánægja fulltrúa þróunarríkjanna felst í því að formaðurinn hafi algjörlega horft fram hjá ábendingum þeirra og að þær hafi ekki verið bókaðar í álitinu með niðurstöðum úr viðræðum nefndarmanna um málið. Fimm alþjóðastofnanir sendu skriflega kvörtun til framkvæmdastjóra WTO, auk þess til fulltrúa allra ríkja. Þar kemur fram að ákvörðun Stefáns Hauks, að hundsa ábendingar vanþróuðu ríkjanna, "sé hvorki þolanleg né verði látin óátalin." Fulltrúarnir segja að taka þurfi tillit til þess hvaða áhrif niðurskurður tolla hafi á þróunarríkin. Hin efnaðri ríki, svo sem Bandaríkin Evrópuríki og Japan hafa lagt á það mikla áherslu að tollar verði afnumdir fyrir 2020. Þróunarríkin halda því fram að með því að skera niður tolla þróunarríkjanna jafnhart og jafnmikið og efnaðri ríkja, bitni það mun harðar á þeim því tollarnir séu hærri og verði niðurskurðurinn því hlutfallslega meiri. Stefán Haukur sagði í samtali við Fréttablaðið að gagnrýnin hefði byggst á misskilningi og það sé nú almennt viðurkennt. Samningaviðræður haldi nú áfram og vonast sé til að niðurstöður náist í næstu viku. "Það eru búnar að vera mjög stífar viðræður í gangi enda ólíkir hagsmunir hinna 147 aðildarríkja. Ég lagði textann fram sem drög að innleggi í heildartexta sem verið var að vinna. Í bréfi sem ég lét fylgja með útskýrði ég að textinn væri ósamþykktur og ekki endanlegur. Þegar þeir sem fyrir gagnrýninni stóðu voru látnir vita af þessu bréfi róaðist málið og tekið var til greina að ég hefði ekki einfaldlega vaðið áfram," segir Stefán.
Fréttir Innlent Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Innlent Intuens lagði landlækni Innlent Fleiri fréttir Kjósendur Viðreisnar líta frekar til vinstri Rýnt í nýja könnun Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Ráðherra segir fáheyrðar tafir á umhverfismati Sundabrautar Gaf barnabarninu vinninginn Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra Sjá meira