Innlent

Reyndu að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins

Karl og kona á þrítugsaldri voru handtekin í Leifsstöð við komuna frá París á föstudag, eftir að um það bil fjögur kíló af mjög hreinu amfetamíni fundust í farangri þeirra. Að sögn Morgunblaðsins nemur smásöluverð efnisins á bilinu 40 til 60 milljónum króna og var fólkið úrskurðað í allt að tveggja vikna gæsluvarðhald á laugardag. Fólkið er íslenskt og er þetta eitt stærsta fíkniefnamál, sem upp hefur komið í Leifsstöð til þessa. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hefur fengið málið til rannsóknar. Stutt er síðan að þrír átján ára dregir voru handteknir í Leifsstöð með hálft kíló af kókaíni í fórum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×