Samsæri gegn neytendum 29. október 2004 00:01
Ólöglegt samráð olíufélaganna er samsæri gegn atvinnulífinu og neytendum, segir forstjóri Samkeppnisstofnunar. Samkeppnisráð hefur sektað olíufélögin um tvö komma sex milljarða króna fyrir ólöglegt samráð, en talið er að samfélagslegur skaði vegna brota þeirra nemi um fjörutíu milljörðum króna. Olíufélögin ætla að áfrýja niðurstöðunni. Samkeppnisráð komst að niðurstöðu í málinu á fundi sínum í gær, og var forsvarsmönnum olíufélaganna kynnt ákvörðunin í morgun. Málið varðar ólögmætt samráð olíufélaganna Skeljungs, Olís og Olíufélagsins ESSO, frá 1. mars 1993 þegar samkeppnislög tóku gildi, til desember árið 2001, þegar Samkeppnisstofnun gerði húsleit hjá félögunum, auk ólögleg samráðs Orkunnar við hin félögin þrjú. Það er mat Samkeppnisráðs að ávinningur olíufélaganna hafi á þessum tíma numið að minnsta kosti sex og hálfum milljarði króna í skjóli lögbrotsins, og samkvæmt mati sérfræðinga OECD er ætlað að samfélagslegur skaði vegna hins ólögmæta samráðs nemi meira en fjörutíu milljörðum króna. Georg Ólafsson, forstjóri Samkeppnisstofnunar segir samráð af þessu tagi alvarlegustu samkeppnishömlur sem fyrirfinnist og svo viðamikið mál sem þetta sé vandfundið. Þetta sé samsæri gagnvart atvinnulífinu og neytendum. Mjög þung viðurlög eru lögð á stóru olíufélögin þrjú, og nema stjórnvaldssektir á hvert þeirra 1,1 milljarði króna, en Orkunni er gert að greiða 40 milljónir króna í sekt. Forstjóri Samkeppnisstofnunar segir litið svo á að þessar sektir séu til varnaðar til framtíðar og telur hann niðurstöðuna réttláta og sanngjarna. Vegna samstarfs við Samkeppnisstofnun í því skyni að upplýsa brot olíufélaganna, ákvað Samkeppnisráð að gefa Olíufélaginu 45% afslátt og lækka sekt félagsins niður í 605 milljónir króna. Ennfremur var ákveðið að gefa OLÍS 20% afslátt þannig að sektargreiðsla félagsins hljóðar upp á 880 milljónir. Skeljungur fær hins vegar engan afslátt og ber félaginu því að greiða 1,1 milljarð í sekt vegna ólöglegs samráðs. Georg segir að menn hafi metið það þannig að Olíufélagið hafi aðstoðað það mikið við rannsókn málsins að þeim hafi borið þessi afsláttur. Ekki hafi verið litið svo á að Skeljungur ætti rétt á afslætti. Heildarsektargreiðslurnar félaganna nema því 2,6 milljörðum króna, en samkvæmt reglum getur sekt, sem Samkeppnisráð ákvarðar, mest numið tíu prósentum af heildarveltu fyrirtækjanna. Öll olíufélögin hafa ákveðið að áfrýja ákvörðuninni Samkeppnisráðs til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, og ef þau una ekki niðurstöðu þeirrar nefndar, geta félögin höfðað mál fyrir dómi. Hörður Felix Harðarson, lögfræðingur Skeljungs segir það óréttlátt að félögin séu sektuð um misháar upphæðir. Hann segir að ítarlegar athugasemdir hafi verið lagðar fram, enda séu engar efnislegar forsendur til þess að mismuna olíufélögunum með þessum hætti. Skeljungur hafi lagt samkeppnisstofnun allt það lið við rannsóknina sem mögulegt hafi verið. Kristinn Björnsson, sem var forstjóri Skeljungs á þeim tíma, sem brotin voru framin, vildi ekki tjá sig um málið, fyrr en endanleg niðurstaða lægi fyrir. Í niðurstöðu ráðsins segir að samráð um gerð tilboða hafi verið viðhaft í viðskiptum við meðal annars ÍSAL, Flugleiði, Vegagerðina og dómsmálaráðuneytið. Lögmaður OLÍSS segir niðurstöðuna hvorki í nokkru samræmi við raunveruleikann, né fordæmi hérlendis eða erlendis. Kristinn Hallgrímsson, lögmaður Kers, áður Olíufélagsins ESSÓ, segir ákvörðun Samkeppnisráðs ekki koma á óvart. Hann segir það liggja fyrir að samkeppnislögin hafi verið brotin, en málið liggi þannig lögfræðilega að það hafi firnst í höndunum á Samkeppnisstofnun og þar með hafi niðurstaðan átt að vera allt önnur.
Fréttir Innlent Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Erlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent