Bæjarráð vill nýta fyrirliggjandi næturferðir fyrir Shellmót og goslokahátíð 27. júní 2007 17:15 Næturferðir verða farnar fyrir Shellmót og goslokahátíð. MYND/GVA
Á bæjarráðsfundi í Vestmannaeyjum í dag var fjallað um samgöngur á sjó en Elliði Vignisson bæjarstjóri hefur undanfarið gagnrýnt seinagang yfirvalda við að koma á næturferðum með ferjunni Herjólfi.Í ályktun bæjarráðs er lýst áhyggjum af því að enn hefur ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um að fjölga áætlunarferðum Herjólfs um rúmlega 20 í sumar ekki komið til framkvæmda. „Vestmannaeyingar eru orðnir langþreyttir á ástandinu og mikilvægt að tafarlaust verði gripið til aðgerða," segir í ályktuninni. „Vestmannaeyjabær hefur lengi unnið að undirbúningi þessara næturferða og lagt áherslu á að kortleggja helstu flöskuhálsa. Þeirri vinnu lukum við fyrir dágóðum tíma og óskuðum þá eftir 20 ferðum og tiltókum dagsetningar enda mikilvægt að geta auglýst þessa þjónustu. Því vill bæjaráð ítreka óskir sínar um að þær 20 ferðir sem samgönguyfirvöld höfðu ákveðið að farnar yrðu í sumar verði tafarlaust settar inn í áætlun." Bæjaryfirvöld segja þann drátt sem orðið hafi á framkvæmdinni eflaust eiga sér sínar skýringar en engu að síður sé það algerlega óásættanlegt og frekleg framkoma við Eyjamenn og gesti þeirra að mál þetta sé enn ófrágengið nú þegar hámarksálag er á Herjólfi. „Framundan eru ferðahelgar eins og Shellmót, goslokahátíð og þjóðhátíð og heimamenn búa við það flestar helgar að komast ekki til og frá bæjarfélaginu," segir í ályktuninni. „Til þess að vinna okkur tíma og bregðast við þessum nærtækasta vanda hefur bæjarráð nú gripið til þess ráðs að óska eftir því að Herjólfur sigli þær 5 næturferðir sem kveðið er á um í gildandi samningum í kringum Shellmót og goslokahátíð. Sú ákvörðun hefur því verið tekin að nú fyrir Shellmót verða næturferðir farnar í dag, miðvikudag 27. júní, á fimmtudag 28. júní og svo aftur á sunnudag 1. júlí. Í kringum goslokahátíð hefur tveimur næturferðum verið bætt við, á fimmtudeginum 5. júlí og sunnudeginum 8. júlí." Bæjarráð segir að þar með sé núverandi svigrúm Vestmannaeyjabæjar til að biðja um næturferðir búið. „Þetta var gert í þeirri trú að þessar tvær vikur sem við brúum með þessu verði notaðar til að efna gefin loforð um 20 næturferðir." Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmanneyjum, bendir á að einungis séu laus pláss fyrir örfáa bíla með næturferðinni sem fara á í kvöld og nánast sé orðið upppantað í næturferðina á sunnudag. „Hafa þarf hugfast að þessar ferðir voru fyrst auglýstar í gær og þetta sýnir betur en margt hversu mikil þörfin fyrir þessar ferðir er," segir bæjarstjórinn.
Mest lesið Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent Herjólfur siglir ekki meira í dag Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Fleiri fréttir Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Stígvélaskortur í Eyjum og brekkusöngur í Kópavogi Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnudags Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Herjólfur siglir ekki meira í dag Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Verbúðarstemning á Hjalteyri og nóg af ástarpungum fyrir alla Mannmergð vildi sjá fyrsta konunglega breska gestinn Óveður í Eyjum og verbúðarstemning á Hjalteyri Hnífurinn reyndist grilltangir „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Læti í miðbænum og í veðrinu Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Opnun Samverks á Hellu fagnað „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Íbúar við Þjórsá æfir og þrumuveður um Versló Handtekinn með reipi um hálsinn eftir ofsaakstur á flugbraut undir áhrifum fíkniefna Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Ný verðskrá kindakjöts vonbrigði fyrir sauðfjárbændur Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Fundu engan hvítabjörn Hraunbreiðan þykknar og líkur á framhlaupum aukast „Hann skilar algjörlega auðu í náttúruverndarmálum“ Sjá meira