Hafnfirskur bæjarfulltrúi sagður kríta liðugt Jakob Bjarnar skrifar 12. febrúar 2015 14:04 Rósa og Guðlaug furða sig á fullyrðingum Gunnars Axels að hann kannist ekkert við málið sem hann tjáði sig um fyrir fáeinum mánuðum á bæjarstjórnarfundi.
Stjórn Strætó bs. mun taka ákvörðun á stjórnarfundi á morgun um að hækka gjald í strætó um nærri 15 prósent. Vísir fjallaði um málið í morgun og þar er meðal annars rætt við Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar í Hafnarfirði, sem undrast þessa tilhögun: „Þessi ákvörðun kemur mér mjög á óvart, enda hefur engin umræða farið fram um málið í sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem eiga aðild að Strætó bs. Ég skil ekki þessa ákvörðun og tel hana vanhugsaða,“ segir Gunnar Axel. Félagar Gunnars Axels í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, nánar tiltekið oddvitar meirihlutans, Rósa Guðbjartsdóttir Sjálfstæðisflokki og Guðlaug Kristjánsdóttir oddviti Bjartrar framtíðar, furða sig á þessum ummælum. „Sannleikurinn er alltaf sagna bestur, og menn verða að kannast við orð sín og standa við þau,“ segir Rósa. Og Guðlaug vekur sérstaka athygli á málinu á Facebook, hún segir hægan leik að sanna það að Gunnar Axel tali gegn sér betri vitund. Guðlaug deilir upptöku frá bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði frá 17. september síðastliðnum. Einar Birkir Einarsson, stjórnarmaður í Strætó kynnti það sem á döfinni er hjá fyrirtækinu en til andsvars kom „Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar og forveri Einars Birkis í stjórn Strætó, auk þess að taka til máls undir sama lið um 10 mínútum síðar. Það er því ekki rétt sem sami Gunnar Axel greinir frá í Fréttablaði dagins í dag, að hann kannist ekki við neina umræðu um gjaldskrár Strætó í sveitarstjórnunum sem aðild eiga að fyrirtækinu,“ segir Guðlaug. Uppfært 15:39Vísar ásökunum um lygi alfarið á bug Vísir ræddi við Gunnar Axel um þessar ásakanir og hann telur þær alfarið úr lausu lofti gripnar: „Þarna vísar oddviti Bjartrar framtíðar í umræður í bæjarstjórn, sem fram fóru í september 2014. Þar lágu ekki fyrir neinar tillögur um gjaldskrárbreytingar en fulltrúi Bjartrar framtíðar nefndi það í ræðu sinni að það yrði eitthvað sem væri til skoðunar. Ég fór sérstaklega yfir það í minni ræðu hversu mikilvægt það væri að horfa ekki blint á markmið um aukna kostnaðarhlutdeild farþegar, vegna þess að aðal markmið okkar væri að auka hlutdeild Strætó í öllum samgöngum almennt. Hækkanir á gjaldskrám geta svo augljóslega unnið gegn þessu markmiði,“ segir Gunnar Axel og vísar því alfarið á bug að hann hafi farið með rangt mál. Innlegg frá Guðlaug Kristjánsdóttir.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira