Ný vefsíða heimsminjanefndar opnuð 10. desember 2010 15:57 Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO Mynd: GVA
Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnuðu síðuna formlega í gær. Heimsminjasamningurinn miðar að því að vernda bæði menningarminjar og náttúruminjar sem eru einstakar í heiminum. Á heimasíðunni má finna fréttir af samningnum, upplýsingar um aðild Íslands að honum og um Þingvelli og Surtsey, en það eru þeir staðir á Íslandi sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarráðherra benti í ávarpi sínu á nauðsyn þess að gefa Íslendingum kost á því að kynna sér málefni heimsminja frá íslensku sjónarhorni þar sem starf tengt heimsminjamálum hefur mikla þýðingu fyrir Ísland, bæði heima og á alþjóðavísu og nokkuð hefði borið á skorti á gagnlegum upplýsingum um þetta málefni. Í máli Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra kom meðal annars fram að samstarf umhverfisráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins við undirbúning aðildar að samningnum og við framkvæmd hans hefði verið til fyrirmyndar. Nú er í undirbúningi alþjóðleg tilnefning víkingaminjastaða sem Ísland er í forsvari fyrir. Einnig er unnið að gerð nýrrar skrár yfir þá staði sem Ísland gæti hugsanlega tilnefnt á næstu árum, meðal annars Vatnajökulsþjóðgarð sem náttúruminjar og íslenskar torfbyggingar sem menningarminjar. Smellið hér til að skoða nýja vefinn: Heimsminjar.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira