Tannlæknir hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga 10. desember 2010 06:30 Verjandi tannlæknisins, Gestur Jónsson hrl., segir ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands ólögmæta. Myndin er úr safni.
Tannlæknir á Suðurnesjum hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands þess efnis að stöðva þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar hans frá og með 1. október síðastliðnum. Þetta staðfestir Gestur Jónsson hrl., lögmaður tannlæknisins, við Fréttablaðið. Tannlæknirinn sem um ræðir hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir meint tryggingasvik upp á 129 þúsund krónur. Verjandi hans sagði í Fréttablaðinu fyrr í vikunni að málatilbúnaðurinn væri undarlegur. Hann hefur gert kröfu um að málinu verði vísað frá dómi. Rannsókn málsins hjá lögreglu hefur tekið á fimmta ár. Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum og var jafnvel talið, samkvæmt upplýsingum sem þeim voru veittar, að svikin næmu allt að 200 milljónum króna síðustu þrjátíu ár, uppreiknað til nóvember 2007. Samkvæmt ákærunni sem þingfest hefur verið er tannlækninum gefið að sök á hafa á árunum 2003 til 2006 svikið út rúmar 129 þúsund krónur vegna 34 tannviðgerða í ellefu einstaklingum. Sjúkratryggingar Íslands gera einkaréttarkröfu í málinu um að tannlækninum verði gert að endurgreiða mest ríflega 23 milljónir króna en minnst 129.412 krónur. Fimm vikum áður en tannlækninum var birt ákæran fékk hann bréf frá Sjúkratryggingum þess efnis að ekki yrði um að ræða frekari endurgreiðslur frá stofnuninni vegna tannlæknisverka hans. Verjandi tannlæknisins hefur kært ákvörðunina og segir hana ólögmæta. Sjúkratryggingar grundvalli hana meðal annars á nýjum reglum í reglugerð frá 15. september 2010. „Nýju reglunum frá því 15. september verður einungis beitt um atvik eða ástand sem upp hefur komið frá því að reglurnar tóku gildi,“ útskýrir Gestur og bendir á að hver maður eigi rétt á að teljast saklaus nema sekt hans sé sönnuð fyrir dómi. Reynir Jónsson, tryggingatannlæknir hjá Tryggingastofnun, hefur ekki viljað tjá sig um málið, að hluta né í heild, þegar eftir því hefur verið leitað. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira