Gefa salernisrúllur 10. desember 2010 06:00 Þórður Kárason, framkvæmdastjóri Papco, (í miðið) naut aðstoðar jólasveinsins við að afhenta starfsmanni Fjölskylduhjálparinnar pappír. „
Taktu þátt í að gefa gjöf“ heitir styrktarherferð íslenska hreinlætispappírsframleiðandans Papco nú fyrir jólin. „Ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jólaumbúðum frá Papco rennur til góðgerðamála,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins, en það styrkir Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Rauða krossinn og Fjölskylduhjálpina. Haft er eftir Þórði Kárasyni, framkvæmdastjóra Papco, að fyrirtækið geri ráð fyrir að gefa 20 þúsund salernisrúllur til góðgerðamála. „Og erum þegar búin að afhenta um helminginn. Okkar viðskiptavinir, bæði einstaklingar og fyrirtæki, hafa tekið mjög vel í þessa styrktarherferð og með því að fara þessa leið geta allir lagt sitt af mörkum og gjöfin verður veglegri,“ segir hann. Þá er í tilkynningu fyrirtækisins haft eftir Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanni Fjölskylduhjálpar Íslands, að Papco hafi veitt Fjölskylduhjálpinni ómetanlegan stuðning allt frá stofnun samtakanna fyrir átta árum. Söfnun Papco stendur út desember, en auk styrktarherferðarinnar er fyrirtækið sagt hafa aukið stuðninginn við Fjölskylduhjálpina enn frekar með auknu vöruframlagi til samtakanna. - óká
Mest lesið Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Sjá meira