Neytendastofa setur sölubann á Latabæjarhjálma 10. desember 2010 14:53 Hjálmarnir eru með myndum af Sollu Stirðu og Íþróttaálfinum.
Neytendastofa hefur lagt bann á sölu hlífðarhjálma sem seldir eru undir vöruheiti Latabæjar. Hjálmarnir eru af gerðinni ATLAS og eru þeir framleiddir í bláum lit með mynd af íþróttaálfinum og bleikum lit með mynd af Sollu stirðu. Innflytjandi hjálmanna er Safalinn ehf. Í tilkynningu segir að ákvörðun Neytendastofu feli í sér að Safalanum ehf. beri að fjarlægja öll óseld eintök hjálmanna af markaði þegar í stað. Hjálmarnir hafa að sögn Neytendastofu meðal annars verið til sölu í verslun Hagkaups í Smáralind. Ástæða þess að hjálmarnir eru teknir úr umferð er að umbúðir þeirra hafa verið ranglega merktar og ekki í samræmi við lög, reglur og staðla sem um framleiðslu þeirra gilda. „Merkingar gefa til kynna að þá megi nota á skíðum en svo er ekki og skulu þeir eingöngu notaðir á reiðhjólum, hjólaskautum og hjólabrettum." Þá segir að á umbúðum sé röng staðhæfing um að hjálmarnir séu vottaðir af Forvarnarhúsi Sjóvá, Umferðastofu og Slysavarnarfélaginu. Ennfremur eru stærðarmerkingar á umbúðum ekki í samræmi við merkingar á hjálmunum sjálfum en þeir eru ætlaðir fyrir börn með höfuðstærð 54 -58 cm en ekki 49 - 57 cm líkt og fram kemur á umbúðum. „Einnig vantar upplýsingar um númer staðals á umbúðir og að hjálminn megi ekki nota við ákveðnar aðstæður, s.s. klifur," segir einnig og þess getið að engar tilkynningar hafi borist Neytendastofu um slys af völdum hjálmanna.
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Fleiri fréttir Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Sjá meira