Innlent

Vann 23 milljónir í Lottóinu

Atli Ísleifsson skrifar
Enginn var með fimm tölur réttar í Jókernum í útdrætti kvöldsins.
Enginn var með fimm tölur réttar í Jókernum í útdrætti kvöldsins. Vísir/Vilhelm
Heppinn miðahafi vann tæpar 23 milljónir króna í Lottó-útdrætti kvöldsins. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að miðinn hafi verið seldur á lotto.is.

Þrír ­miðahafar unnu 2. vinning og hlutu hver 122 þúsund krónur í sinn hlut. Tveir miðanna voru seldir í áskrift en einn í 10/11 í Suðurfelli í Reykjavík.

Í tilkynningunni segir jafnframt að enginn hafi verið með fimm tölur réttar í Jókernum en að tveir miðahafar hafi unnið 100 þúsund krónur fyrir að vera með fjórar tölur réttar í réttri röð. Þeir miðar voru seldir í Kolaportinu og Aðal-Braut í Grindavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×