Arsenal vann slaginn um Lundúnir

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Arsenal fagna þriðja og síðasta marki liðsins í dag.
Leikmenn Arsenal fagna þriðja og síðasta marki liðsins í dag. Andrew Boyers/Getty Images

Arsenal vann frábæran 3-0 sigur á Chelsea í Lundúnaslag dagsins á Emirates-vellinum.

Miklar breytingar voru á liði Arsenal þar sem David Luiz, Willian og Gabriel voru allir fjarverandi. Luiz og Willian hafa verið veikir en eru ekki með kórónuveiruna. Þá hafði Gabriel umgengist einhvern með Covid-19 og því mátti hann ekki spila.

Það má segja að breytingarnar hafi reynst lán í óláni en Arsenal átti frábæran fyrri hálfleik. Þegar rúmur hálftími var liðinn fiskaði Kieran Tierney vítaspyrnu er Reece James braut á honum innan vítateigs.

Alexandre Lacazette fór á punktinn og skoraði af öryggi. Tíu mínútum síðar skoraði Granit Xhaka úr aukaspyrnu og staðan 2-0 í hálfleik.

Það voru svo rúmar tíu mínútur liðnar af síðari hálfleik þegar Bukayo Saka skoraði með frábærri fyrirgjöf sem sveif yfir Edouard Mendy í marki Chelsea í stöng og inn. Staðan allt í einu orðin 3-0 og sigur Arsenal svo gott sem tryggður. Arsenal fékk urmul færa í kjölfarið og voru hársbreidd frá því að komast fjórum mörkum yfir.

Þegar fimm mínútur voru til leiksloka minnkaði Tammy Abraham muninn í 3-1 og þegar venjulegur leiktími var við það að renna út fengu gestirnir vítaspyrnu. Jorginho fór á punktinn en Bernd Leno gerði sér lítið fyrir og varði slaka spyrnu miðjumannsins.

Staðan því enn 3-1 og reyndust það lokatölur leiksins. Arsenal fer upp í 17 stig í 15. sæti deildarinnar á meðan Chelsea er nú í 6. sæti með 25 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira