Innlent

Fara þurfi var­lega næstu vikur svo jólin verði ekki undir­lögð sam­fé­lags­smiti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Úr Smáralind.
Úr Smáralind. Vísir/Vilhelm

Mikilvægt er að samfélagið vari varlega næstu þrjár vikurnar svo að vikan í kringum jól verði ekki undirlögð af samfélagssmitum, að því að er fram kemur í niðurlagi nýrrar rýni hóps vísindamanna sem stendur að spálíkani um þróun kórónuveirufaraldursins á Íslandi.

Mikilvægt er að samfélagið vari varlega næstu þrjár vikurnar svo að vikan í kringum jól verði ekki undirlögð af samfélagssmitum, að því að er fram kemur í niðurlagi nýrrar rýni hóps vísindamanna sem stendur að spálíkani um þróun kórónuveirufaraldursins á Íslandi.

Hin nýja rýni var birt í dag en fram hefur komið í fréttum í dag að smitstuðullinn hér á landi sé kominn upp fyrir 1,5. Allt fyrir ofan 1 sé ávísun á aðra bylgju að sögn Thors Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, sem fer fyrir hópi vísindamannanna.

Ellefu greindust innanlands í gær, allir á höfuðborgarsvæðinu, en aðeins þrír af þeim voru í sóttkví. Fólki í sóttkví fjölgaði um 155, voru 291 í gær en 446 í dag.

Í rýninni segir að hækkun á smitstuðli ætti að að vera samfélaginu viðvörun.

„Ef smitstuðull fær að haldast yfir einum er óvissan mjög mikil og hætta miklum vexti til staðar. Þegar greind smit eru fá þá getur ein hópsýking haft þau áhrif að smitstuðull hækkar snögglega en ef tekst að ná utan um slíka sýkingu þá lækkar stuðullinn aftur. Hins vegar hefur ekki teksti að rekja nýgreind smit síðustu daga og óvissan því mikil. Það er allt í boði en árangur veltur á okkur.“

Þá segir einnig að næstu dagar muni skera úr um hvort tekst ná böndum utan um þessi smit þannig smituðullinn leiti aftur niður.

„Hækkandi tölur ættu ekki að koma á óvart fyrri hluta desember, á meðan tök nást aftur.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagðist á upplýsingafundi almannavarna í morgun hafa skilað inn tillögum til heilbrigðisráðherra um áframhaldandi aðgerðir. Næstu dagar muni þó ráða úrslitum um hvort hægt verði að fara í einhverjar tilslakanir, en núverandi sóttvarnarráðstafanir gilda til 2. desembers.

Í niðurlagi rýni vísindamannana segir að ljóst sé að virkni í þjóðfélaginu fari vaxandi, enda jólin á næsta leiti. Hafa þurfi í huga að nýgengi faraldursins sé hátt eða hann í miklum vexti víða í kringum Íslands. Skilaboðin frá vísindamönnunum eru því tiltölulega einföld.

„Við þurfum að fara varlega næstu 3 vikur til þess að vikan í kringum jól verði ekki undirlögð af samfélagssmitum.“


Tengdar fréttir

Segir ekkert samræmi í fjöldatakmörkun í verslunum

Forstjóri Olís kallar eftir fyrirsjáanleika í sóttvarnaraðgerðum og óskar eftir opnu samtali við stjórnvöld. Jafnvel þótt atvinnulífið hafi hagsmuna að gæta búi verslunarfólk yfir reynslu af beitingu aðgerða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×