Annað tap Everton í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Wilson gerði Everton lífið leitt í dag.
Wilson gerði Everton lífið leitt í dag. Alex Pantling/Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Everton sem tapaði 2-1 fyrir Newcastle á útivelli. Þetta var annað tap Everton í röð í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi átti fínan leik fyrir Everton.

Fyrri hálfleikurinn var afar tíðindalítill. Í rauninni gerðist ekkert markvert fyrsta hálftímann. Everton var með boltann en náði lítið að opna þéttan varnarmúr heimamanna.

Staðan var markalaus í hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks átti Gylfi ágætis skot en inn vildi boltinn ekki. Gylfi byrjaði úti hægra megin en færðist inn á miðjuna er Everton fór að skipta inn.

Fyrsta mark leiksins kom úr vítaspyrnu á 56. mínútu. Callum Wilson féll þá í teignum eftir baráttu við Andre Gomes. Stuart Attwell, dómari leiksins, benti á punktinn. Wilson fór sjálfur á punktinn og skoraði.

Annam mark kom á 85. mínútu og aftur var það Wilson. Ryan Fraser slapp frá Yerri Mina og fann sinn gamla liðsfélaga frá Bournemouth, Wilson, sem kom boltanum yfir línuna.

Á 92. mínútu náði Everton að minnka muninn. Eftir undirbúning Alex Iwobi skoraði Dominic Calvert-Lewin enn eitt markið á þessari leiktíð en nær komust Gylfi og félagar ekki.

Lokatölur urðu 2-1 sigur Newcastle sem er nú með ellefu stig eftir sjö leiki í tíunda sætinu. Everton er áfram í öðru sætinu með þrettán stig en gæti fallið niður töfluna er umferðinni lýkur á morgun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira