Guðrún Eva fékk verðlaun í flokki fagurbókmennta 25. janúar 2012 19:30 Guðrún Eva Mínervudóttir.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í dag, miðvikudaginn 25. janúar 2012, Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut í flokki fagurbókmennta Guðrún Eva Mínervudóttir fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur, gefin út af JPV útgáfu, og í flokki fræðirita og bóka almenns efnis Páll Björnsson sagnfræðingur fyrir bókina Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar sem Sögufélagið gefur út. Þetta er í tuttugusta og þriðja skiptið sem verðlaunin eru afhent en fyrst var tilnefnt til þeirra árið 1989. Forseti Íslands setti samkomuna en því næst flutti Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu og kynnti tilnefnda höfunda. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti. Þriggja manna lokadómnefnd, skipuð þeim Þorgerði Jennýjardóttur Einarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, Árna Matthíassyni blaðamanni og Þorsteini Gunnarssyni, sérfræðingi hjá RANNÍS og fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, sem var formaður, valdi verkin úr hópi tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember síðastliðnum, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna í hvorum flokki. Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens – opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans. Lay Low söng lögin Horfið, lag Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir og ljóð Valborgar Bentsdóttur og Gleðileg blóm, lag og texti Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir. Bæði eru lögin af disknum Brostinn strengur sem kom út á síðasta ári og á eru lög Lay Low við ljóð eftir íslenskar skáldkonur. Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fagurbókmennta: Guðrún Eva Mínervudóttir: Allt með kossi vekur. Útgefandi: JPV útgáfa Hallgrímur Helgason: Konan við 1000°. Útgefandi: JPV útgáfa Jón Kalmann Stefánsson: Hjarta mannsins. Útgefandi: Bjartur Oddný Eir Ævarsdóttir: Jarðnæði. Útgefandi: Bjartur Steinunn Sigurðardóttir: jójó. Útgefandi: Bjartur Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis: Ármann Jakobsson og Þórður Ingi Guðjónsson: Morkinskinna I og II bindi. Útgefandi: Hið íslenzka fornritafélag Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson: Góður matur, gott líf – í takt við árstíðirnar. Útgefandi: Vaka-Helgafell Jón Yngvi Jóhannsson: Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar. Útgefandi: Mál og menning Páll Björnsson: Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar Útgefandi: Sögufélag Sigríður Víðis Jónsdóttir: Ríkisfang: Ekkert - Flóttinn frá Írak á Akranes Útgefandi: Mál og menning
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira