Innlent

Starfshlutfall hugsanlega skert hjá blaðamönnum Fréttablaðsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Til greina kemur að allir starfsmenn Fréttablaðsins sem vinna í 100% starfi muni fara í 90 prósent starfshlutfall frá og með næstu mánaðamótum. Þá verður fjórum blaðamönnum sagt upp störfum.

Á fundi starfsfólks Fréttablaðsins í dag kom var lagt til að farið yrði í þessar hagræðingaraðgerðir í ljósi þess að Samkeppniseftirlitið hefði úrskurðað að ekki væri hægt að prenta og dreifa Fréttablaðinu í samstarfi við útgefendur Morgunblaðsins.

Klemens Þrastarson, trúnaðarmaður starfsmanna á Fréttablaðinu, segir að starfsfólkið taki vel í þessar breytingar. Starfsfólk telji að með þessu megi koma í veg fyrir að fleiri missi störf. Gert er ráð fyrir að skerðing starfshlutfalls verði tímabundin og þann 1. september næstkomandi fari allir í fullt starfshlutfall að nýju. Þá muni breytingin ekki skerða réttindi starfsfólks, svo sem orlofsgreiðslur.

Fyrr í kvöld var fullyrt að þessi ákvörðun hefði verið kynnt á fundi með Ara Edwald forstjóra 365 í dag. Það er ekki rétt heldur var hugmyndin rædd á fundi ritstjórnarinnar í dag. Ákvörðun um málið verður tekin eftir helgi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×