Evrópusambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála 20. febrúar 2009 09:33 Stefán Már Stefánsson
Stefán Már Stefánsson prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands segir að evrópusambandið geti breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild með auknum meirihluta. Þetta var meðal þess sem kom fram í hádegisverðarerindi Stefáns á vegum Lögfræðingafélags Íslands í vikunni. Þetta kemur fram á fréttavef Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag. Í erindi sínu rakti Stefán Már grunnþætti hinnar sameiginlegu fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, benti á ýmsar mótsagnir í reglugerðarverkinu og vakti jafnframt athygli á því að í afleiddri löggjöf sambandsins fælust mjög víðækar heimildir. Hann kom inn á svokallað kvótahopp, sem Bretar urðu t.d. illa fyrir barðinu á, og sagði í senn erfitt og óljóst hvernig girða mætti fyrir slíkar uppákomur. Stefán fór yfir reynslu Norðmanna í aðildarviðræðum 1994 og sagði þá hvorki hafa komist lönd eða strönd með sínar kröfur. Færi svo að Ísland sækti um aðild sagði Stefán Már það grundvallaratriði að samningsmarkmið væru skýr frá upphafi. Annars væri hætta á að samningamenn sneru heim með loðnar yfirlýsingar á borð, rétt eins og gerðist í Noregi. Þar höfnuðu Norðmenn aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira