Tekist á um umhverfismál á þingi 2. febrúar 2006 17:12 MYND/GVA
Þingmaður vinstri - grænna segir nýja úttekt Ríkisendurskoðunar á aðild Íslands að Samningnum um líffræðilega fjölbreytni áfellisdóm yfir stjórnvöldum í umhverfismálum. Umhverfisráðherra hafnar því og segir stefnumótunartillögu í umhverfismálum að vænta á þessu ári. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður vinstri - grænna, var málshefjandi í utandagskrárumræðu á Alþingi í morgun þar sem rætt var um skýrslu Ríkisendurskoðunar um aðild Íslands að Samningnum um líffræðilega fjölbreytni sem tók gildi 1994. Samningurinn snýr að umhverfismálum og í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir meðal annars að aðild Íslands að samningnum hafi haft takmörkuð áhrif á löffgjöf og opinbera stefnu um líffræðilega fjölbreytni þá segir Ríkisendurskoðun að samningurinn hafi ekki leitt til meiri rannsókna og aukinnar áherslu á náttúruvernd. Kolbrún sagði umhverfisráðherra síðustu ára hafa sagt framkvæmdaáætlun í málinu á næsta leiti en ekkert hefði gerst. Þá sagði Kolbrún að í samningnum væri þess krafist að tillit væri tekið til náttúrunnar eða líffræðilegra auðlinda. Ný löggjöf sem sniðgengi þessi grundvallarmarkmið og væri því brot á samningnum væru lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherrasagði samninginn hins vegar hafa haft ýmis áhrif á stefnumörkun stjórnvalda á sviði umhverfismála. Hún viðurkenndi þó að greining og vöktun náttúrunar stæði veikast og sagði starf að stefnumótun um líffræðilega fjölbreytni ætti að ljúka á árinu. Sigríður Anna sagði enn fremur að hún liti ekki á skýrsluna sem áfellisdóm yfir íslenskum stjórnvöldum. Hún kæmi hins vegar að góðu gagni í stefnumótunarferli umhverfisráðuneytisins. Verið væri að vinna að markmiðum samningsins með mjög markvissum hætti og þeirri vinnu yrði lokið síðar á árinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira