Innlent

Hildur Eir Bolladóttir guðfræðingur valin í Laugarnesprestakalli

Valnefnd í Laugarnesprestakalli ákvað á fundi sínum nýlega að leggja til að Hildi Eir Bolladóttur, guðfræðingi, verði veitt embætti prests í Laugarnesprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.

Umsóknarfrestur rann út þann 15. janúar síðastliðinn og embættið veitist frá 1. mars næstkomandi.  Fimm umsækjendur voru um embættið.

Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar. Valnefnd skipuðu fimm fulltrúar úr prestakallinu auk vígslubiskupsins í Skálholti



Fleiri fréttir

Sjá meira


×